Bækur
Höfundar
Þýðendur
Um Bókafélagið Uglu
 
 


Eldri bækur
 
  Fiskleysisguðinn.
Ásgeir Jakobsson.
 
Um tuttugu ára skeið gagnrýndi Ásgeir Jakobsson, rithöfundur, fiskveiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í snjöllum ádeilugreinum sem birtust í Morgunblaðinu. Hann taldi fiskifræðinga ekki búa yfir nægilegri þekkingu á lífríki sjávar til að fara í stjórnunarleik með fiskveiðarnar. Hann benti á þá sögulegu staðreynd að íslensk fiskislóð þarfnaðist jafnrar og góðrar grisjunar. Þannig fengist af henni jafnbesti aflinn og ekki minna en 400 þúsund tonn árlega af þorski. Hafrannsókn hefði tekið skakkan pól í hæðina og stjórnað þorstofninum í felli. Þrjátíu ára samdráttar- og friðunarstjórn Hafrannsóknar hefði haft af þjóðinni ekki minna 200 milljarða í gjaldeyristekjur. Hér er þessum greinum Ásgeirs Jakobssonar safnað á bók sem óhætt er að segja að eigi beint erindi í þá umræðu sem óhjákvæmilega er í vændum þegar æ fleiri eru að vakna til vitundar um að ekki er allt með felldu í fiskveiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

1.490 kr. (kilja). Panta.
     
  Í hita kalda stríðsins.
Björn Bjarnason.
 
Fáir hafa fjallað af meiri þekkingu um stefnu Íslands í utanríkis- og öryggismálum en Björn Bjarnason. Hann hefur skrifað um þau efni með reglubundnum hætti í meira en aldarfjórðung – jafnt sem blaðamaður, embættismaður og stjórnmálamaður. Í þessari bók er að finna úrval blaðagreina hans um utanríkis- og alþjóðamál. Björn kemur svo víða við í þessum skrifum að kalla má að bókin sé eins konar víðsjá kaldastríðsáranna á Íslandi í ljósi þróunar á alþjóðavettvangi. Mjög fróðlegt og einstaklega læsilegt rit um höfuðdrættina í íslenskri utanríkis- og öryggisstefnu.

1.990 kr. (kilja). Panta.
     

 








Veittur er
10% afsláttur
af bókakaupum hér á vefsíðunni.
Ef keypt er fyrir 10.000 krónur eða meira er afslátturinn 20%. Heimsending er ókeypis. Greiðsluseðill fylgir sendingunni.
Panta.

 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »