Bækur
Höfundar
Þýðendur
Um Bókafélagið Uglu
 
 


Bækur 2005
 
  Fjölmiðlar 2004.
Ólafur Teitur Guðnason.
 
Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhrædduróhræddir við að taka kollega sína á beinið. Bókin Fjölmiðlar 2004 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2004 og er óhætt að segja að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðarríku og átakasömu ári. Engum sem les bókinaþess bók getur dulist að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.

288 bls.
1.790 kr. (kilja). Panta.
     
  Frá mínum bæjardyrum séð.
Jakob F. Ásgeirsson.
 
Um sjö ára skeið, 1998–2004, skrifaði Jakob F. Ásgeirsson reglulega pistla um þjóðmál sem mikla athygli vöktu. Pistlar þessir birtust fyrst í „Viðhorfa“-dálki Morgunblaðsins en síðan í Viðskiptablaðinu undir yfirskriftinni „Orð í tíma töluð“. Hér er úrvali þessara beinskeyttu og skemmtilegu pistla safnað í eina heild sem óhætt er að segja bregði upp lifandi mynd af stjórnmálum og aldarfari á Íslandi við lok 20. aldar og upphaf hinnar tuttugustu og fyrstu.

288 bls.
1.490 kr. (kilja). Panta.
     
  Kastað í Flóanum.
Ásgeir Jakobsson.
 
Í tilefni af því að 100 ár eru frá upphafi íslenskrar togaraútgerðar kemur bók Ásgeirs Jakobssonar, Kastað í Flóanum, nú út í endurskoðaðri gerð. Í bókinni er rakin sagan af upphafi togveiða við Ísland og útgerð Coots, fyrsta íslenska togarans. Brugðið er upp lifandi mannlýsingum af þeim sem við sögu koma. Stórfróðleg og bráðskemmtileg lýsing á aldarfari á Íslandi þegar stigin voru fyrstu skrefin í mestu atvinnubyltingu Íslandssögunnar.

287 bls.
1.490 kr. (kilja). Panta.
     

  Kommúnisminn.
Richard Pipes.
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson og Margrét Gunnarsdóttir.
 
Í bókinni er lýst fræðilegum grunni kommúnismans, fjallað um fyrstu hugmyndir um eignalaust samfélag og hvernig kommúnisminn varð að fræðikenningu um afnám séreignarréttarins og vopnaða byltingu. Rakin er saga kommúnismans í Rússlandi og velt vöngum yfir því hvers vegna Rússland, þvert á alla spádóma Marx, varð fyrst landa til að verða kommúnískt. Sagt er frá stjórnarháttum Leníns og Stalíns í Sovétríkjunum, samyrkjuvæðingunni og ógninni miklu, hnignun kommúnistastjórnarinnar og loks falli hennar í Evrópu. Fjallað er um sögu kommúnismans á heimsvísu – útbreiðslu hans til Kína og þróunarlanda, viðtökur hans á Vesturlöndum og kalda stríðið. Loks er reynt að grafast fyrir um það hvers vegna kommúnisminn mislukkaðist og gerð grein fyrir þeim mannfórnum sem kommúnisminn kallaði yfir heimsbyggðina á 20. öld. Richard Pipes, prófessor emeritus í sagnfræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, er einn þekktasti sérfræðingur heims í sögu kommúnismans. Hann hefur skrifað fjölmörg fræðirit um byltinguna og kommúnismann í Rússlandi en einnig fræðirit um eignarrétt og frelsi.

180 bls.
1.990 kr. Panta.
     

  Óvanaleg grimmd.
Patricia Cornwell.
Þýð.: Atli Magnússon.
 
Fingraförin benda til þess að morðinginn sé maðurinn sem var verið að taka af lífi ... Kay Scarpetta glímir við sitt erfiðasta mál. Óvanaleg grimmd fékk hin virtu verðlaun "Gullna rýtinginn" sem besta sakamálasaga ársins.

2.490 kr. Panta.
     
  Stjörnubjartar nætur.
Maeve Binchy.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.
 
Á lítilli grískri eyju sitja nokkrir ferðalangar yfir hádegisverði á krá uppi í fjallshlíð, tvær konur og tveir karlar. Skyndilega verða þau vitni að óvæntum harmleik sem tengir þau nánum böndum. Öll standa þau á tímamótum, telja sig hafa sagt skilið við sitt gamla líf en eiga eftir að gera upp reikningana og finna sér nýja fótfestu í lífinu. Undir næturregni og stjörnubjörtum himni fléttast saga þessara ólíku einstaklinga saman. Einstaklega hlý og notaleg saga um ástir og mannleg örlög.

2.490 kr. Panta.
     
  Vondur félagsskapur.
Jack Higgins.
Þýð.: Atli Magnússon.
 
 
Ný bók um harðnaglann Sean Dillon. Þegar fall Berlínar vofði yfir fól Adolf Hitler ungum aðstoðarmanni að varðveita dagbók sína. Í dagbókinni er sannkallað sprengiefni. Voldugir og hættulegir menn beita öllum brögðum til að komast yfir dagbókina og það er undir Sean Dillon komið að aftra því. Æsispennandi bók – Jack Higgins eins og hann gerist bestur.

203 bls.
2.490 kr. Panta.
 

 








Veittur er
10% afsláttur
af bókakaupum hér á vefsíðunni.
Ef keypt er fyrir 10.000 krónur eða meira er afslátturinn 20%. Heimsending er ókeypis. Greiðsluseðill fylgir sendingunni.
Panta.

 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »