| |
Bækur 2006
 |
|
Biblían á 100 mínútum.
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson.
Allir þekkja Biblíuna, bók
bókanna. En alltof fáir hafa lesið í henni, hvað þá lesið hana spjaldanna á
milli. Biblían á 100 mínútum geymir frásagnir Biblíunnar í hnotskurn – frá
Mósebókunum til Opinberunarbókarinnar. Biblían í þessum nýja búningi tekur
einungis um 100 mínútur í lestri – og er því tilvalin í ferðalagið eða
upplýsandi kvöldlestur. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, skrifar
formála að bókinni og kemst þar m.a. svo að orði: „Ég fagna útkomu
Biblíunnar á 100 mínútum. [Hún] er skemmtilegt og handhægt yfirlit ... [og]
gefur glögga innsýn í meginstef Biblíunnar og handhægan leiðarþráð til að
rata gegnum hana.“
64 bls.
990 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Bla bla.
Colting & Gadd.
Meira en 600 bráðfyndnar, stórfurðulegar og gagnslausar staðreyndir til að segja
frá þegar maður hefur ekkert til að tala um. Bla bla kemur til bjargar þegar þið
hafið ekki hugmynd um hvað þið eigið að segja – í partíum, við matborðið eða
meðal vina. Núna getið þið slegið í gegn með mögnuðum fróðleik og fyndnum
athugasemdum! Marylyn Monroe var með sex tær á vinstri fæti. Þú átt sama
afmælisdag og níu milljónirr annarra. Það er ekki hægt að hnerra með augun
opin. Ef kalkúnn lítur upp með munninn opinn í rigningu gæti hann átt á
hættu að drukkna.
1.490 kr. (kilja).
Panta.
|
| |
|
|
 |
|
Borgarstjórinn í Casterbridge.
Thomas Hardy.
Þýð.: Atli Magnússon.
Borgarstjórinn í Casterbridge
er ein af ágætustu sögum enska skáldjöfursins Thomasar Hardys. Sagan gerist
á æskuslóðum höfundar í Dorchester á Englandi (sem er Casterbridge í
sögunni). Atvinnulaus landbúnaðarverkamaður, Mikael Henchard, selur í ölæði
konu sína og dóttur ókunnum sjómanni á sveitamarkaði. Í iðrun og örvæntingu
hefur hann árangurslausa leit að konunni og barninu og gengur í 21 árs
bindindi. Að átján árum liðnum hefur vegur hans vaxið svo að hann er orðinn
borgarstjóri í Casterbridge, voldugur kaupmaður og mikils metinn. En
fortíðin hvílir á honum eins og mara – og dag einn ... Stórbrotið verk um
mikil örlög – mannlegan breiskleika og styrk, örvilnun og hamingju, ástir og
afbrýði, sjálfselsku og veglyndi. Eitt af meistaraverkum heimsbókmenntanna –
í vandaðri þýðingu Atla Magnússonar.
390 bls.
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Fjölmiðlar 2005.
Ólafur Teitur Guðnason.
Áhrif fjölmiðla eru mikil, en
lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð
markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að
skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir
og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið
óhræddur við að taka kollega sína á beinið. Í fyrra kom út bókin Fjölmiðlar
2004 þar sem öllum fjölmiðlapistlum Ólafs Teits árið 2004 var safnað saman.
Svo mjög fór gagnrýni Ólafs Teits fyrir brjóstið á íslenskri blaðamannastétt
að enginn ritdómur birtist um bókina í hinum hefðbundnu fjölmiðlum.
Fjölmiðlapistlar Ólafs koma nú út á bók annað árið í röð. Bókin Fjölmiðlar
2005 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2005 og er óhætt að segja
að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku
ári. Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm
og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna. Í ljós kemur að fjölmiðlum veitir svo
sannarlega ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað öðrum.
352 bls.
1.790 kr. (kilja).
Panta. |
| |
|
|
|

|
|
Heilræðavísur.
Hallgrímur Pétursson og
Anna Þóra Árnadóttir.
Hinar sígildu Heilræðavísur
Hallgríms Péturssonar með nýjum myndskreytingum Önnu Þóru Árnadóttur. Bókin
er öll í lit og er hver vísa myndskreytt á einni opnu. Myndirnar lýsa þeim
tilfinningum sem textinn vekur. Í myndskreytingunum eru notaðir akríllitir
og blýantur. Heilræðakvæði voru vinsæl kveðskapargrein um daga Hallgríms
Péturssonar (1614–1674). Þar gafst tækifæri til að koma á framfæri með
skemmtilegum hætti, ekki síst til barna, nytsömum sannindum og góðum ráðum
um sið og brag. Hallgrímur orti allmörg kvæði af þessu tagi og eru
Heilræðavísur hans þeirra kunnust. Heilræðavísurnar hafa notið mikillar
hylli, en segja má að þær lýsi flestu því sem verða má hverjum manni til
gæfu og gengis. Einstaklega falleg bók sem ætti að vera til á hverju heimili.
28 bls.
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|
|

|
|
Í húsi listamanns.
Jakob F. Ásgeirsson.
Bókin hefur að geyma
svipmyndir af sumum mætustu listamönnum og rithöfundum Íslendinga á 20. öld.
Svipmyndirnar eru 25 og flestar með sama sniði: heimsókn til þjóðkunns
listamanns þar sem reynt er í stuttu samtali að bregða upp skyndimynd af
manninum og því sem hann er að fást við þá stundina, vinnubrögðum hans og
afstöðu til lífs og listar. Samtalsþættir þessir birtust fyrst í
Morgunblaðinu, flestir á árunum 1981–1982, og þeim fylgja einstakar
portrettmyndir af viðmælendunum eftir ljósmyndara Morgunblaðsins.
Viðmælendur Jakobs eru, í stafrófsröð: Agnar Þórðarson rithöfundur, Eggert
Guðmundsson listmálari, Finnur Jónsson listmálari, Gísli J. Ástþórsson
rithöfundur og teiknari, Guðbergur Bergsson rithöfundur, Helgi Sæmundsson
skáld, Hjörleifur Sigurðsson listmálari, Jóhann Briem listmálari, Jóhannes
Helgi rithöfundur, Jóhannes Jóhannesson listmálari, Jón Óskar skáld, Jón úr
Vör skáld, Jónas Árnason rithöfundur, Kjartan Guðjónsson listmálari,
Kristján Karlsson skáld, Kristmann Guðmundsson rithöfundur, Ólafur Jóhann
Sigurðsson rithöfundur, Septem-hópurinn, Sigurður Sigurðsson listmálari,
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari, Snorri Hjartarson skáld, Steinþór Sigurðsson
listmálari, Svavar Guðnason listmálari, Sveinn Björnsson listmálari og
Valtýr Pétursson listmálari.
224 bls.
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|

|
|
Kristján Albertsson — Margs er að minnast.
Jakob F. Ásgeirsson.
Frásagnarsnilld Kristjáns
Albertssonar var alkunn. Hann lifði söguríka tíma og hafði frá mörgu að
segja. Jakob F. Ásgeirsson settist við fótskör Kristjáns í elli hans þegar
sjónleysi varnaði honum ritstarfa. Úr samstarfi þeirra varð til þessi
dýrlega minningabók. Kristján lýsir samtíð sinni– öld gleði og ljóma,
harðneskju og ófriðar, framfara og ævintýra – og bregður upp ógleymanlegum
svipmyndum af nokkrum samferðarmönnum sínum og vinum, svo sem Matthíasi
Jochumssyni, Einari Benediktssyni, Jóhanni Sigurjónssyni, Jóhannesi Kjarval
og Guðmundi Kamban.
1.490 kr. (kilja).
Panta.
|
|
|





Veittur er
10% afsláttur
af bókakaupum hér á vefsíðunni.
Ef keypt er fyrir 10.000 krónur eða meira er
afslátturinn 20%. Heimsending er ókeypis. Greiðsluseðill
fylgir sendingunni.
Panta.
|
|