 |
|
Advances in Rights Based Fishing.
Birgir Þór Runólfsson o. fl.
Um eignarréttarbundna fiskveiðistjórnun. Ritgerðir byggðar á
fyrirlestrum á ráðstefnu RSE í ágúst 2006.
2.990 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Bartimæus I – Verndargripurinn frá Samarkand.
Jonathan Stroud.
Þýð.: Brynjar Arnarson.
Ungur töframannslærlingur, Nathaniel, verður á vegi
töframeistarans Simons Lovelace sem ber höfuð og herðar yfir aðra töframenn
sökum kunnáttu sinnar og grimmdar. Þegar Lovelace niðurlægir Nathanial
opinberlega ákveður Nathaniel að hefna sín. Hann stefnir til sín á laun
skapbráðum 5.000 ára gömlum djinní, Bartimæus. Hann fær Bartimæus það
verkefni að ræna hinum magnþrungna verndargrip frá Samarkand frá Lovelace.
Áður en langt um líður sogast Nathaniel og Bartimæus inn í ógnvænlega
hringiðu leynimakks og átaka. Sögusviðið er London nútímans þar sem
töframenn fara með völd. Mögnuð metsölubók sem farið hefur sigurför um
heiminn og gagntekið hugi lesenda á öllum aldri. Tvær milljónir eintaka
seldar.
440 bls.
3.990 kr.
Panta.
Guðríður
Haraldsdóttir, Dv.is, 20.11.2008:
... búin að
finna arftaka Harry Potters ... hrikalega skemmtileg... ætti að vera í
höndum sem flestra. » |
| |
|
|
 |
|
Blóðreiturinn.
Patricia Cornwell.
Þýð.: Atli Magnússon.
Jól. Nakið lík finnst í Central Park í New York ...
Jólahátíðin hefur sjaldan reynst Kay Scarpetta góður tími. Þá fara
ofbeldismenn stundum á stjá og það þýðir útkall hjá
yfirréttarmeinafræðingnum í Virginíu og greinanda hjá FBI, bandarísku
alríkislögreglunni. Líkið er af ungri konu sem enginn veit hver er. Því
hefur verið stillt upp við gosbrunn í skuggalegum hluta Central Park. Allt
bendir til þess að sadískur raðmorðingi sé aftur kominn á kreik. Aldrei
hefur reynt meira á Kay Scarpetta og samstarfsmenn hennar en í þessari
æsilegu leit að siðblindum brjálæðingi sem er með Kay á heilanum.
360 bls.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Dýrmætast er frelsið.
Hege Storhaug.
Þýð.: Magnús Þór Hafsteinsson.
Ásýnd Evrópu er óðum að breytast. Fjöldi innflytjenda hefur
streymt til álfunnar á undanförnum áratugum. Ólíkir menningarheimar mætast.
Hefðbundin vestræn gildi eiga víða undir högg að sækja. Jafnvel á
Norðurlöndum blasir við alvarlegur vandi. Í mörgum tilvikum hefur aðlögun
misheppnast: gettómyndun, aukið trúarofstæki, kynjamisrétti, ofbeldi gegn
konum og börnum, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og hjónabönd þar sem ungt
fólk er þvingað til að eiga maka sem eru sóttir til upprunalandsins. Allt
eru þetta vandamál sem nágrannalönd okkar glíma nú við í síauknum mæli og
afleiðingar innflytjendastefnu undanfarinna áratuga. Í þessari bók er einkum
fjallað um þann vanda sem frændur okkar Norðmenn standa frammi fyrir.
Jafnframt er farið yfir sviðið í öðrum Vestur-Evrópulöndum. Gríðarmikil
heimildavinna liggur að baki bókinni. Henni er ekki síst ætlað að vinna bug
á fordómum sem koma í veg fyrir opna og gagnrýna umræðu um innflytjendamál.
Stundum er sagt að þróunin á Íslandi sé a.m.k. tíu árum á eftir því sem
gerist í nágrannalöndunum. Margt bendir til að þessi bók lýsi vandamálum sem
við Íslendingar munum þurfa að takast á við fyrr en síðar.
360 bls.
1.990 kr. (kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Ella Bella ballerína og Þyrnirós
(barnabók).
James Mayhew.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.
Ella Bella hefur yndi af ballettkennslunni hjá frú Rósu í Gamla
leikhúsinu. Eitt sinn við lok balletttíma er hún einsömul á leiksviðinu. Hún
lyftir lokinu af spiladósinni hennar frú Rósu. Þegar tónlistin tekur að
hljóma hverfur hún inn í ævintýraheim Þyrnirósar. Tekst henni að bjarga
Áróru prinsessu úr álögum vondu álfadísarinnar? Hugljúft ævintýri með
einstaklega fallegum myndum. Hin dásamlega Ella Bella er hugarfóstur breska
rithöfundarins og listamannsins James Mayhew, en hann er þekktur fyrir
metsölubækurnar um Kötu sem gætt hafa mörg fræg listaverk lífi í hugum ungra
lesenda. Í fylgd Ellu Bellu kynnast börnin töfrum klassískra ballettverka.
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Gleym mér ei
(barnabók).
Michael Broad.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.
„Mundu
að fylgja hjörðinni,“
sagði mamma.
„Og
aldrei gleyma því hve mér þykir vænt um þig.“
Fílinn Fúsi þarf að leggja þetta tvennt á minnið. En þegar hann finnur
skínandi bláan hlut gleymir hann orðum mömmu sinnar og fer í skoðunarferð
upp á eigin spýtur. Finnur hann mömmu sína aftur áður en regntíminn hefst?
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Gunnar Dal Ljóðasafn.
Gunnar Dal.
Ljóðasafn Gunnars Dal er
gefið út í tilefni af 85 ára afmæli þessa skálds og heimspekings. Safnið
geymir allar fimmtán ljóðabækur hans og auk þess eina nýja sem nefnist
„Það
ert þú“.
Fyrsta ljóðabók Gunnars kom út árið 1949 og er hann með afkastamestu skáldum
þjóðarinnar. Í formála segir Jóhannes Helgi að ljóð Gunnars séu vitnisburður
um agaða listgáfu og virðingu fyrir lífinu.
3.990 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Hagfræði í hnotskurn.
Henry Hazlitt.
Þýð.: Haraldur Johannessen.
Klassískt verk um grundvallaratriði hagfræðinnar, skrifað af
frábærum hagleik. Hvaða hlutverki gegna verð og hagnaður – og hvernig virkar
markaðurinn? Hvað býr að baki háum sköttum, verðbólgu, atvinnuleysi og
kreppu? Höfundurinn leiðir lesandann um völundarhús hagfræðinnar og kennir
honum að hugsa upp á nýtt um sígild álitaefni í þjóðmálaumræðunni.
272 bls.
2.490 kr. (kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Hinn mikli Gatsby.
F. Scott Fitzgerald.
Þýð.: Atli Magnússon.
Enginn vissi í rauninni hver
Gatsby var. Sumir sögðu að hann hefði verið þýskur njósnari, aðrir að hann
væri skyldur evrópsku kóngafólki. En allir nutu hans frábæru gestrisni. Í
íburðarmiklum húsakynnum á Long Island hélt hann frægar veislur. Fæstir
gestanna þekktu þó gestgjafann í sjón. Það var eins og hann væri án tíma og
rúms. Áhrifamikil lýsing á miklum velmegunartíma, jassáratugnum – glysi og
glaum, tálsýnum og dvínandi siðferðisþrótti. Eitt af meistaraverkum
heimsbókmenntanna og jafnframt ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma. Hinn
mikli Gatsby er önnur skáldsaga F. Scotts Fitzgeralds sem kemur út á
íslensku í þýðingu Atla Magnússonar.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Ljósálfavinkonur
(barnabók).
Penny Dann.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.
Komdu með öllum ljósálfavinkonum
þínum í náttfatapartí! Bókin hefur m.a. að geyma töfraarmband,
límmiðaeyrnalokka, dúkkulísur, gersemaöskju o.fl.
2.490 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Pollýanna
(barnabók).
Eleanor
H. Porter.
Þýð.: Freysteinn Gunnarsson.
Ungfrú Pollý er
rík en skapvond. Hún hefur aldrei laðast að börnum. En þegar ellefu ára
gömul systurdóttir hennar verður munaðarlaus getur hún ekki skorast undan
því að taka hana að sér. Þessi stúlka er Pollýanna. Hún er alltaf glöð hvað
sem á dynur. Bjartsýni hennar og gleði smitar út frá sér – og hefur
undraverð áhrif á alla sem umgangast hana. Líka ungfrú Pollý.
Dásamleg saga um
það hvernig gleði og jákvætt hugarfar geta unnið bug á erfiðleikum lífsins.
Pollýanna er ein
vinsælasta barnabók allra tíma og jafnan talin til klassískra
barnabókmennta. Höfundur hennar, Eleanor H. Porter (1868–1920), skrifaði
fjölda barnabóka en Pollýanna er hennar meistaraverk.
Pollýanna kom
fyrst út í Bandaríkjunum árið 1913 – en kemur nú út í sjötta sinn á Íslandi
í afbragðsþýðingu Freysteins Gunnarssonar skólastjóra Kennaraskólans.
220 bls.
1.990
kr.
Panta.
Morgunblaðið,20.11.2008:
Góður
boðskapur sem á alltaf erindi. » |
| |
|
|
 |
|
Ranghugmynd Richards Dawkins.
Alister McGrath og Joanna Collicut McGrath.
Þýð.: Brynjar Arnarson.
Guðleysingjar og vantrúarmenn
eru fyrirferðarmiklir í fjölmiðlum nútímans, sbr. þá miklu athygli sem bók
hins heimsþekkta vísindamanns Richards Dawkins, The God Delusion
(Ranghugmyndin Guð), hefur vakið. Í þessari bók, Ranghugmynd Richards
Dawkins, takast hjónin Alister McGrath, prófessor í trúarbragðasögu við
Oxford-háskóla, og Joanna Collicut McGrath, trúarbragðasálfræðingur á við
hugmyndir Dawkins og hlífa honum hvergi. Er trú vitleysa? Eiga vísindin og
trúarbrögðin í ævarandi baráttu? Eiga vísindin og trúarbrögðin í ævarandi
baráttu? Geta vísindin skýrt rætur kristindómsins? Er kristindómurinn
einfaldlega verkfæri hins illa? Þetta eru m.a. þær spurningar sem
McGrath-hjónin glíma við í þessari þörfu bók.
124 bls.
1.990 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Spilin á borðið.
Agatha Christie.
Þýð.: Ragnar Jónasson.
Herra Shaitana safnar fólki
sem hefur komist upp með morð. Hann býður Hercule Poirot í heimsókn en áður
en kvöldið er á enda hefur einn „safngripanna“ myrt gestgjafann. Fjórir
liggja undir grun – og Poirot stendur frammi fyrir einni af sínum erfiðustu
ráðgátum. Spilin á borðið (Cards on the Table) kom út á frummálinu árið 1936
en kemur nú út í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta.
Kolbrún
Bergþórsdóttir, Lesbók Mbl., 15.11.2008:
Þægileg
spenna ... Prýðisgóð afþreying. » |
| |
|
|
 |
|
Stefnumót við dauðann.
Agatha Christie.
Þýð.: Ragnar Jónasson.
Illgjörn bandarísk ekkja finnst látin í hinni fornu borg
Petra í Landinu helga. Margir vildu hana feiga en örlítið far eftir
sprautunál er eina vísbendingin um að hún hafi ekki dáið eðlilegum dauðdaga.
Hercule Poirot tekur að sér að komast að hinu sanna innan sólarhrings.
Stefnumót við dauðann (Appointment with Death) hefur áður komið út í
íslenskri þýðingu undir heitinu Feigðarför.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Stoðir FL bresta.
Óli Björn
Kárason.
FL Group er í mörgu samnefnari þess sem miður hefur
farið í íslensku viðskiptalífi á síðustu árum. Eins og venjulega hafa
fjölmiðlar og almenningur leitað að blóraböggli. Sjónir hafa einkum beinst
að einum manni. Eins og svo oft áður er málið ekki svo einfalt.
Stoðir FL bresta rekur sögu fyrirtækis sem
virtist ætla að leggja heiminnn að fótum sér. Óli Björn Kárason dregur upp
fremur dökka mynd og kemst að þeirri niðurstöðu að saga FL Group – Stoða –
sé dapurlegur vitnisburður um framgöngu íslenskra viðskiptajöfra á
undanförnum árum og áfellisdómur yfir sinnulausum almennum hluthöfum.
Ákafinn við að byggja upp viðskiptaveldi og verja fjárhagslega hagsmuni
sinna nánustu varð skynseminni yfirsterkari. Samþætting fjárhagslegra
hagsmuna og samtrygging var höfð að leiðarljósi á kostnað arðsemi. Stefnu-
og ístöðuleysi, sem kristallaðist í nafnabreytingum, stöðugum
skipulagsbreytingum og sundraðri fjárfestingastefnu, einkenndi alla
starfsemi fyrirtækisins.
Fáir íslenskir blaðamenn hafa betri innsýn í íslenskt
viðskiptalíf en Óli Björn Kárason, sem hefur áratuga reynslu af umfjöllun um
innviði og flókna þræði sem liggja milli fyrirtækja og einstaklinga.
Stoðir FL bresta er fyrsta bókin í röð bóka um
íslenskt viðskiptalíf og athafnamenn.
Með teikningum eftir Halldór Baldursson.
120 bls.
2.490 kr.
(kilja).
Panta.
Magnús Þór
Hafsteinsson:
Snaggarleg og fín bók um braskleikfimiæfingar nokkurra þeirra manna sem
vísast hafa með gjörðum sínum kallað þjóðargjaldþrot yfir íslensku þjóðina. ...
» |
| |
|
|
 |
|
Þjóð í hafti.
Jakob F.
Ásgeirsson.
Þekkir þú sögu haftaáranna? Þegar öll verslun á Íslandi var
hneppt í svo harðar viðjar að ekki mátti flytja bók til landsins án þess að
biðja yfirvöld um leyfi? Þegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóð
næturlangt í biðröðum í von um að geta keypt sér eitt par af bomsum? Þegar
innflutningsleyfi fyrir bílum gengu kaupum og sölum fyrir hærra verð en
sjálfur bíllinn kostaði? Þegar menn voru fangelsaðir fyrir að reisa sér
bílskúr í óþökk yfirvalda? Þegar ríkið rak prentsmiðju og vélsmiðju og setti
á fót ótal einkasölur – viðtækjaeinkasölu, bifreiðaeinkasölu,
raftækjaeinkasölu og grænmetiseinkasölu? Þegar pólitísk spilling grasséraði,
smygl og svartamarkaður – og voldug hagsmunasamtök risu upp úr öllum áttum
til að tryggja hlut sinn í haftakerfinu?
Haftatímabilið er jafnan talið standa frá 1930 til 1960 þegar
viðreisn efnahagslífsins hófst í anda frjáls markaðsbúskapar. Í þessari bók
segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega læsilegan hátt.
Bókin kom fyrst út árið 1988 og hefur lengi verið ófáanleg.
380 bls.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|