| |
Bækur 2009
 |
|
Minning um morð.
Agatha Christie. Þýð.: Ragnar Jónasson.
Minning um morð (Five
Little Pigs / Murder in Retrospect) er ein kunnasta sakamálasaga Agöthu
Christie og meðal mest seldu bóka hennar. Sumir telja að Agatha sé
öðrum þræði að skrifa um fyrra hjónaband sitt í þessari bók, en
atburðir sögunnar gerast um líkt leyti og hún hvarf, eins og frægt
varð. Minning um morð kom út á frummálinu árið 1942
en kemur nú út í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn. Ragnar
Jónasson þýddi bókina og ritar eftirmála. John Curran, höfundur
nýrrar bókar um Agöthu segir: „Minning um morð er
hápunkturinn á ferli Christie sem sakamálasagnahöfundar;
fullkomnasta blanda hennar af leynilögreglusögu og „venjulegri“
skáldsögu.“ |
 |
|
Adda.
Jenna og Hreiðar.
Fyrsta bókin í
hinum sígilda bókaflokki eftir Jennu og Hreiðar. Öddu-bækurnar eru
meðal vinsælustu barnabóka sem komið hafa út á Íslandi en þær hafa
verið ófáanlegar árum saman. Adda er munaðarlaus. Hún á illa vist
hjá Birnu gömlu sem ætlar að senda hana í sveit. En Adda neitar að
fara. Bókin er prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson. |
 |
|
Adda og litli bróðir.
Jenna og Hreiðar.
Önnur bókin í
hinum sígilda bókaflokka um Öddu. Adda litla er í sveit þegar hún
eignast bróður. Hana langar óskaplega mikið til að sjá hann. Eitt
kvöldið grípur hún til sinna ráða. Bókin er prýdd teikningum eftir
Halldór Pétursson. |
 |
|
Að skilja heiminn.
Æviminningar sendiherra.
Einar Benediktsson.
Einar
Benediktsson er einn af okkar reyndustu sendiherrum. Hann starfaði í
utanríkisþjónustunni í tæpa fjóra áratugi og var sendiherra í Genf,
París, London, Brussel, Osló og Washington. Í utanríkisþjónustunni
sinnti Einar mjög samskiptum Íslands við aðrar Evrópuþjóðir – allt
frá aðildinni að EFTA til EES-samningsins. Gerðist Einar snemma
eindreginn talsmaður þess að Ísland sækti um aðild að
Evrópusambandinu. Í þessari bók bregður Einar upp einstökum myndum
af lífi og starfi stjórnarerindreka á viðburðatímum, ekki síst í
París þar sem hann dvaldi lengst. Hann lýsir æsku sinni í Reykjavík
kreppu- og styrjaldarára, segir frá foreldrum sínum, hinum
goðsagnakennda afa sem hann var heitinn eftir og forvitnilegum
örlögum ættmenna sinna, svo sem föðursystkina og frændfólks af
Ráðagerðisætt á Nýja-Sjálandi. Yfir frásögninni allri er viðfeldinn
blær manns sem ekki aðeins hefur verið virkur þátttakandi í straumum
og stefnum síns tíma heldur hefur gert sér far um að skyggnast undir
yfirborðið – og skilja heiminn. |
 |
|
Kvæðaúrval
Kristján Karlsson.
Í bókinni er að
finna úrval kvæða Kristjáns sem Magnús Sigurðsson, skáld og
bókmenntafræðingur, hefur valið. Magnús ritar jafnframt ítarlegan
inngang um kvæðagerð Kristjáns. Kristján Karlsson hefur fyrir löngu
tryggt sér sess meðal fremstu ljóðskálda á Íslandi. Hann hafði um
langt skeið verið einn fremsti bókmenntafræðingur landsins þegar
hann sendi frá sér fyrstu ljóðabók sína, Kvæði ’76, hálfsextugur að
aldri, árið 1976. Í kjölfarið fylgdu átta ljóðabækur, hin síðasta
Kvæði 03 sem kom út 2003. Magnús velur kvæði úr öllum níu ljóðabókum
Kristjáns. Í inngangi sínum gerir hann grein fyrir helstu þráðunum í
ljóðlist skáldsins. Einstakt safn úrvalsljóða eftir eitt okkar
virtasta og fágaðasta skáld. |
 |
|
Fjölmiðlar
2007.
Ólafur Teitur Guðnason.
Ólafur
Teitur Guðnason hefur fjölþætta reynslu af fjölmiðlum. Hann starfaði lengi á
fréttastofu Útvarpsins en var síðan blaðamaður á DV og Viðskiptablaðinu.
Hann hefur auk þess stýrt útvarps- og sjónvarpsþáttum. Vikulegir
fjölmiðlapistlar Ólafs Teits í Viðskiptablaðinu vöktu á sínum tíma mikla
athygli. Þeir koma nú út á bók í fjórða sinn. Í þessum snörpu og beinskeyttu
pistlum rekur Ólafur Teitur fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og
ámælisverð vinnubrögð fréttamanna.
Engum
sem les þessa bók getur dulist að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því
aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.
288 bls.
1.990 kr. (kilja).
Panta.
Þorbjörn Broddason,
Þjóðmál 2005 (um Fjölmiðla 2004):
„Umboðsmaður lesanda … [Ólafur Teitur] á þakkir skildar fyrir, því
sannarlega var þörf á slíku embætti.“
Egill Helgason,
Þjóðmál 2006 (um Fjölmiðla 2005):
„Kannski
má segja að með þessari kleppsvinnu sé Ólafur Teitur orðinn að eins manns
fjölmiðlastofnun. [Pistlarnir] eru skemmtilega skrifaðir. Þeir eru mátulega
ögrandi; hann er einn af þeim mönnum sem er hressandi að vera ósammála þegar
þannig ber undir.“
Atli Rúnar
Halldórsson, Þjóðmál 2007 (um Fjölmiðla 2006):
„Skrif
[Ólafs Teits] um fjölmiðla hafa verið verið uppáhaldsefni hjá mér frá
upphafi, einfaldlega af því að hann gerir þetta vel: skrifar læsilegan
texta, færir rök fyrir máli sínu og sýnir í verki hvernig fjölmiðlamaður
beitir gagnrýninni hugsun til að komast að kjarna máls ... Fjölmiðlarýni sem
stendur undir nafni.“ |
| |
|
|
 |
|
Hinn mikli Gatsby.
F. Scott Fitzgerald.
Þýð.: Atli Magnússon.
Enginn vissi í rauninni hver
Gatsby var. Sumir sögðu að hann hefði verið þýskur njósnari, aðrir að hann
væri skyldur evrópsku kóngafólki. En allir nutu hans frábæru gestrisni. Í
íburðarmiklum húsakynnum á Long Island hélt hann frægar veislur. Fæstir
gestanna þekktu þó gestgjafann í sjón. Það var eins og hann væri án tíma og
rúms. Áhrifamikil lýsing á miklum velmegunartíma, jassáratugnum – glysi og
glaum, tálsýnum og dvínandi siðferðisþrótti. Eitt af meistaraverkum
heimsbókmenntanna og jafnframt ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma. Hinn
mikli Gatsby er önnur skáldsaga F. Scotts Fitzgeralds sem kemur út á
íslensku í þýðingu Atla Magnússonar.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Hvað er Íslandi fyrir bestu?
Björn Bjarnason.
Krafan um aðild Íslands að Evrópusambandinu er hávær um
þessar mundir. En hvað er Íslandi raunverulega fyrir bestu? Hver er staða
Íslands í hnattvæðingunni? Hvað felst í þátttöku Íslands í
Schengensamstarfinu? Hvaða aðferðum ber að beita við töku ákvarðana um
Evrópusamstarfið? Hverra kosta völ eiga Íslendingar í gjaldmiðilsmálum? Við
þessar spurningar og margar fleiri glímir Björns Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, í þessari þörfu bók sem geymir valdar greinar hans frá
síðustu árum.
192 bls.
1.990 kr. (kilja).
Panta.
Magnús Þór
Hafsteinsson:
Merkileg bók.
Góð samantekt á viðhorfum höfundar til Evrópumála ... mikivægt innlegg
í Evrópuumræðuna ...
» |
| |
|
|
 |
|
Nótt.
Elie Wiesel.
Þýð.: Stefán Einar Stefánsson.
Elie Wiesel var á
unglingsaldri þegar nasistar tóku fjölskyldu hans höndum og sendu hana í
útrýmingarbúðirnar í Auschwitz og Buchenwald. Örlögin höguðu því svo til að
hann komst lífs af. En það tók hann langan tíma að horfast í augu við
hryllinginn sem hann hafði upplifað. Það gerir hann í þesasri magnþrungnu
bók sem kom fyrst út á frönsku árið 1958. Bókin er sjálfsævisöguleg frásögn
af veru unglingsdrengs og föður hans í útrýmingarbúðum nasista. Er hægt að
skilja óhugnað helfararinnar? Af hverju lætur Guð hann viðgangast? Nærfærin
og hugstæð lýsing á örvæntingu andspænis mannlegri illsku á hæsta stigi.
Nótt hefur farið sigurför um
heiminn og selst í milljónum eintaka. Árið 2006 var Nótt valin í Bókaklúbb
Ophru Winfrey í Bandaríkjunum og flaug þá undireins í 1. sæti metsölulista
The New York Times.
Elie Wiesel hefur skrifað
fjölda bóka en Nótt er almennt álitið meistaraverk hans. Wiesel hafa
hlotnast margvíslegrar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf, svo sem
Frelsisorða Bandaríkjaforseta, Gullorða Bandaríkjaþings, franska
heiðursorðan og friðarverðlaun Nóbels árið 1986.
190 bls.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
 |
|
Ný
framtíðarsýn.
Þorkell
Sigurlaugsson.
Í þessari bók fjallar Þorkell
um nauðsyn þess að þjóðin móti sér nýja framtíðarsýn við endurreisn
efnahagslífsins þar sem nýir stjórnarhættir, bætt viðskiptasiðferði,
sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Fjallað er ítarlega um
stjórnun fyrirtækja, einkum hlutverk stjórna, stjórnarhætti stjórna og æðstu
stjórnenda. Þorkell telur brýnt að innleiða ný gildi við stjórnun fyrirtækja
og endurvekja gömul gildi sem hundsuð voru í fífldirfsku og hrunadansi
síðustu ára. Efnahagsleg umgjörð, eftirlitskerfi ríkisvaldsins og ný
framtíðarsýn stjórnvalda, fyrirtækja og einstaklinga skipta höfuðmáli í
þeirri uppbyggingu sem framundan er.
Það er boðskapur bókarinnar
að ástæða sé til bjartsýni ef rétt sé á málum haldið því Ísland er enn land
stórkostlegra tækifæra. Þá þarf að byggja upp alþjóðlegt samstarf og frjáls
markaðshagkerfi en forðast einangrunarstefnu, ríkisforsjá og haftastefnu.
Ný framtíðarsýn er
mikilvægt framlag til umræðunnar um endurreisn atvinnulífsins og uppgjörs
við þá sem komu bankakerfinu, mörgum öflugustu fyrirtækjum landsmanna og
þúsunda landsmanna í fjárhagslegt þrot.
208
bls., innbundin.
4.490 kr.
Tilboðsverð 3.790 kr. Panta.
Umfjöllun
Mánudagur
25. maí:
Eyjan.is
»
Pressan.is
»
Amx.is
»
Bylgjan (Reykjavík síðdegis)
»
Þriðjudagur 26. maí:
Pressan.is
»
Rás 2
»
Kastljós
»
»
Miðvikudagur 27. maí:
Rás 1 (morgunútvarp)
»
Fréttablaðið
»
Ríkisútvarpið (hádegisfréttir)
» |
|
 |
|
Spilin á borðið.
Agatha Christie.
Þýð.: Ragnar Jónasson.
Herra Shaitana safnar fólki
sem hefur komist upp með morð. Hann býður Hercule Poirot í heimsókn en áður
en kvöldið er á enda hefur einn „safngripanna“ myrt gestgjafann. Fjórir
liggja undir grun – og Poirot stendur frammi fyrir einni af sínum erfiðustu
ráðgátum. Spilin á borðið (Cards on the Table) kom út á frummálinu árið 1936
en kemur nú út í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta.
Kolbrún
Bergþórsdóttir, Lesbók Mbl., 15.11.2008:
Þægileg
spenna ... Prýðisgóð afþreying. » |
| |
|
|
 |
|
Stefnumót við dauðann.
Agatha Christie.
Þýð.: Ragnar Jónasson.
Illgjörn bandarísk ekkja finnst látin í hinni fornu borg
Petra í Landinu helga. Margir vildu hana feiga en örlítið far eftir
sprautunál er eina vísbendingin um að hún hafi ekki dáið eðlilegum dauðdaga.
Hercule Poirot tekur að sér að komast að hinu sanna innan sólarhrings.
Stefnumót við dauðann (Appointment with Death) hefur áður komið út í
íslenskri þýðingu undir heitinu Feigðarför.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
| |
|
|
 |
|
Blóðreiturinn.
Patricia Cornwell.
Þýð.: Atli Magnússon.
Jól. Nakið lík finnst í Central Park í New York ...
Jólahátíðin hefur sjaldan reynst Kay Scarpetta góður tími. Þá fara
ofbeldismenn stundum á stjá og það þýðir útkall hjá
yfirréttarmeinafræðingnum í Virginíu og greinanda hjá FBI, bandarísku
alríkislögreglunni. Líkið er af ungri konu sem enginn veit hver er. Því
hefur verið stillt upp við gosbrunn í skuggalegum hluta Central Park. Allt
bendir til þess að sadískur raðmorðingi sé aftur kominn á kreik. Aldrei
hefur reynt meira á Kay Scarpetta og samstarfsmenn hennar en í þessari
æsilegu leit að siðblindum brjálæðingi sem er með Kay á heilanum.
360 bls.
4.490 kr.
Panta.
1.990 kr.
(kilja).
Panta. |
|
|
|
|