Bækur
Höfundar
Vefverslun
Um Bókafélagið Uglu
 
 


Barna- og unglingabækur
 
 

Adda.
Jenna og Hreiðar.

Fyrsta bókin í hinum sígilda bókaflokki eftir Jennu og Hreiðar. Öddu-bækurnar eru meðal vinsælustu barnabóka sem komið hafa út á Íslandi en þær hafa verið ófáanlegar árum saman. Adda er munaðarlaus. Hún á illa vist hjá Birnu gömlu sem ætlar að senda hana í sveit. En Adda neitar að fara. Bókin er prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson.

     
 

Adda og litli bróðir.
Jenna og Hreiðar.

Önnur bókin í hinum sígilda bókaflokka um Öddu. Adda litla er í sveit þegar hún eignast bróður. Hana langar óskaplega mikið til að sjá hann. Eitt kvöldið grípur hún til sinna ráða. Bókin er prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson.

     
 

Bartimæus I – Verndargripurinn frá Samarkand.
Jonathan Stroud.

Ungur töframannslærlingur, Nathaniel, verður á vegi töframeistarans Simons Lovelace sem ber höfuð og herðar yfir aðra töframenn sökum kunnáttu sinnar og grimmdar. Þegar Lovelace niðurlægir Nathanial opinberlega ákveður Nathaniel að hefna sín. Hann stefnir til sín á laun skapbráðum 5.000 ára gömlum djinní, Bartimæus. Hann fær Bartimæus það verkefni að ræna hinum magnþrungna verndargrip frá Samarkand frá Lovelace. Áður en langt um líður sogast Nathaniel og Bartimæus inn í ógnvænlega hringiðu leynimakks og átaka. Sögusviðið er London nútímans þar sem töframenn fara með völd. Mögnuð metsölubók sem farið hefur sigurför um heiminn og gagntekið hugi lesenda á öllum aldri. Tvær milljónir eintaka seldar.

3.990 kr. Panta.

Guðríður Haraldsdóttir, Dv.is, 20.11.2008:
... búin að finna arftaka Harry Potters ... hrikalega skemmtileg ... ætti að vera í höndum sem flestra. »

     
 

Ella Bella ballerína og Þyrnirós (barnabók).
James Mayhew.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.

Ella Bella hefur yndi af ballettkennslunni hjá frú Rósu í Gamla leikhúsinu. Eitt sinn við lok balletttíma er hún einsömul á leiksviðinu. Hún lyftir lokinu af spiladósinni hennar frú Rósu. Þegar tónlistin tekur að hljóma hverfur hún inn í ævintýraheim Þyrnirósar. Tekst henni að bjarga Áróru prinsessu úr álögum vondu álfadísarinnar? Hugljúft ævintýri með einstaklega fallegum myndum. Hin dásamlega Ella Bella er hugarfóstur breska rithöfundarins og listamannsins James Mayhew, en hann er þekktur fyrir metsölubækurnar um Kötu sem gætt hafa mörg fræg listaverk lífi í hugum ungra lesenda. Í fylgd Ellu Bellu kynnast börnin töfrum klassískra ballettverka.

2.490 kr. Panta.

     
 

Gleym mér ei (barnabók).
Michael Broad.
Þýð.: Margrét Gunnarsdóttir.

Mundu að fylgja hjörðinni, sagði mamma.
Og aldrei gleyma því hve mér þykir vænt um þig.
Fílinn Fúsi þarf að leggja þetta tvennt á minnið. En þegar hann finnur skínandi bláan hlut gleymir hann orðum mömmu sinnar og fer í skoðunarferð upp á eigin spýtur. Finnur hann mömmu sína aftur áður en regntíminn hefst?

2.490 kr. Panta.

     
  Ljósálfavinkonur (barnabók).
Penny Dann.

Komdu með öllum ljósálfavinkonum þínum í náttfatapartí! Bókin hefur m.a. að geyma töfraarmband, límmiðaeyrnalokka, dúkkulísur, gersemaöskju o.fl.

2.490 kr. Panta.
     
  Pollýanna (barnabók).
Eleanor H. Porter.
Þýð.: Freysteinn Gunnarsson.

Ungfrú Pollý er rík en skapvond. Hún hefur aldrei laðast að börnum. En þegar ellefu ára gömul systurdóttir hennar verður munaðarlaus getur hún ekki skorast undan því að taka hana að sér. Þessi stúlka er Pollýanna. Hún er alltaf glöð hvað sem á dynur. Bjartsýni hennar og gleði smitar út frá sér – og hefur undraverð áhrif á alla sem umgangast hana. Líka ungfrú Pollý.

Dásamleg saga um það hvernig gleði og jákvætt hugarfar geta unnið bug á erfiðleikum lífsins.

Pollýanna er ein vinsælasta barnabók allra tíma og jafnan talin til klassískra barnabókmennta. Höfundur hennar, Eleanor H. Porter (1868–1920), skrifaði fjölda barnabóka en Pollýanna er hennar meistaraverk.

Pollýanna kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1913 – en kemur nú út í sjötta sinn á Íslandi í afbragðsþýðingu Freysteins Gunnarssonar skólastjóra Kennaraskólans.

220 bls.
1.990
kr. Panta.

Morgunblaðið, 20.11.2008:
Góður boðskapur sem á alltaf erindi. »

 
     

 


 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »