Bækur
Höfundar
Þýðendur
Um Bókafélagið Uglu
 


Fjölmiðlar

Skrif Ólafs Teits Guðnasonar blaðamanns um íslenska fjölmiðla hafa vakið athygli. Fjórar bækur eru komnar út.
 
  Fjölmiðlar 2007.
Ólafur Teitur Guðnason.
 
Ólafur Teitur Guðnason hefur fjölþætta reynslu af fjölmiðlum. Hann starfaði lengi á fréttastofu Útvarpsins en var síðan blaðamaður á DV og Viðskiptablaðinu. Hann hefur auk þess stýrt útvarps- og sjónvarpsþáttum. Vikulegir fjölmiðlapistlar Ólafs Teits í Viðskiptablaðinu vöktu á sínum tíma mikla athygli. Þeir koma nú út á bók í fjórða sinn. Í þessum snörpu og beinskeyttu pistlum rekur Ólafur Teitur fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna.

Engum sem les þessa bók getur dulist að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.

1.990 kr. (kilja). Panta.

Þorbjörn Broddason, Þjóðmál 2005 (um Fjölmiðla 2004):
„Umboðsmaður lesanda … [Ólafur Teitur] á þakkir skildar fyrir, því sannarlega var þörf á slíku embætti.“

Egill Helgason, Þjóðmál 2006 (um Fjölmiðla 2005):
„Kannski má segja að með þessari kleppsvinnu sé Ólafur Teitur orðinn að eins manns fjölmiðlastofnun. [Pistlarnir] eru skemmtilega skrifaðir. Þeir eru mátulega ögrandi; hann er einn af þeim mönnum sem er hressandi að vera ósammála þegar þannig ber undir.“

Atli Rúnar Halldórsson, Þjóðmál 2007 (um Fjölmiðla 2006):
„Skrif [Ólafs Teits] um fjölmiðla hafa verið verið uppáhaldsefni hjá mér frá upphafi, einfaldlega af því að hann gerir þetta vel: skrifar læsilegan texta, færir rök fyrir máli sínu og sýnir í verki hvernig fjölmiðlamaður beitir gagnrýninni hugsun til að komast að kjarna máls ... Fjölmiðlarýni sem stendur undir nafni.“ 
     
  Fjölmiðlar 2006.
Ólafur Teitur Guðnason.
 
Hinir snjöllu fjölmiðlapistlar Ólafs Teits. Engum sem les þessa bók dylst að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.

1.890 kr. (kilja). Panta.
     
  Fjölmiðlar 2005.
Ólafur Teitur Guðnason.

Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhræddur við að taka kollega sína á beinið. Í fyrra kom út bókin Fjölmiðlar 2004 þar sem öllum fjölmiðlapistlum Ólafs Teits árið 2004 var safnað saman. Svo mjög fór gagnrýni Ólafs Teits fyrir brjóstið á íslenskri blaðamannastétt að enginn ritdómur birtist um bókina í hinum hefðbundnu fjölmiðlum. Fjölmiðlapistlar Ólafs koma nú út á bók annað árið í röð. Bókin Fjölmiðlar 2005 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2005 og er óhætt að segja að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku ári. Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna. Í ljós kemur að fjölmiðlum veitir svo sannarlega ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað öðrum.

352 bls.
1.790 kr. (kilja). Panta.
     
  Fjölmiðlar 2004.
Ólafur Teitur Guðnason.
 
Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhrædduróhræddir við að taka kollega sína á beinið. Bókin Fjölmiðlar 2004 geymir alla fjölmiðlapistla Ólafs Teits árið 2004 og er óhætt að segja að hún bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðarríku og átakasömu ári. Engum sem les bókinaþess bók getur dulist að fjölmiðlum veitir sjálfum ekki af því aðhaldi sem þeim er ætlað að sýna öðrum.

288 bls.
1.790 kr. (kilja). Panta.
     

 








Veittur er
10% afsláttur
af bókakaupum hér á vefsíðunni.
Ef keypt er fyrir 10.000 krónur eða meira er afslátturinn 20%. Heimsending er ókeypis. Greiðsluseðill fylgir sendingunni.
Panta.

 

 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »