Bækur
Höfundar
Þýðendur
Um Bókafélagið Uglu
 
 


Fræðirit
 
 

Dýrmætast er frelsið.
Hege Storhaug.

Ásýnd Evrópu er óðum að breytast. Fjöldi innflytjenda hefur streymt til álfunnar á undanförnum áratugum. Ólíkir menningarheimar mætast. Hefðbundin vestræn gildi eiga víða undir högg að sækja. Jafnvel á Norðurlöndum blasir við alvarlegur vandi. Í mörgum tilvikum hefur aðlögun misheppnast: gettómyndun, aukið trúarofstæki, kynjamisrétti, ofbeldi gegn konum og börnum, kynfæralimlestingar, heiðursmorð og hjónabönd þar sem ungt fólk er þvingað til að eiga maka sem eru sóttir til upprunalandsins. Allt eru þetta vandamál sem nágrannalönd okkar glíma nú við í síauknum mæli og afleiðingar innflytjendastefnu undanfarinna áratuga. Í þessari bók er einkum fjallað um þann vanda sem frændur okkar Norðmenn standa frammi fyrir. Jafnframt er farið yfir sviðið í öðrum Vestur-Evrópulöndum. Gríðarmikil heimildavinna liggur að baki bókinni. Henni er ekki síst ætlað að vinna bug á fordómum sem koma í veg fyrir opna og gagnrýna umræðu um innflytjendamál. Stundum er sagt að þróunin á Íslandi sé a.m.k. tíu árum á eftir því sem gerist í nágrannalöndunum. Margt bendir til að þessi bók lýsi vandamálum sem við Íslendingar munum þurfa að takast á við fyrr en síðar.

1.990 kr. (kilja). Panta.

     
 

Hagfræði í hnotskurn.
Henry Hazlitt.

Klassískt verk um grundvallaratriði hagfræðinnar, skrifað af frábærum hagleik. Hvaða hlutverki gegna verð og hagnaður – og hvernig virkar markaðurinn? Hvað býr að baki háum sköttum, verðbólgu, atvinnuleysi og kreppu? Höfundurinn leiðir lesandann um völundarhús hagfræðinnar og kennir honum að hugsa upp á nýtt um sígild álitaefni í þjóðmálaumræðunni.

2.490 kr. (kilja). Panta.

   
  Hvað er Íslandi fyrir bestu?
Björn Bjarnason.

Krafan um aðild Íslands að Evrópusambandinu er hávær um þessar mundir. En hvað er Íslandi raunverulega fyrir bestu? Hver er staða Íslands í hnattvæðingunni? Hvað felst í þátttöku Íslands í Schengensamstarfinu? Hvaða aðferðum ber að beita við töku ákvarðana um Evrópusamstarfið? Hverra kosta völ eiga Íslendingar í gjaldmiðilsmálum? Við þessar spurningar og margar fleiri glímir Björns Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, í þessari þörfu bók sem geymir valdar greinar hans frá síðustu árum.

192 bls.
1.990 kr. (kilja). Panta.

Magnús Þór Hafsteinsson:
Merkileg bók. Góð samantekt á viðhorfum höfundar til Evrópumála ...  mikivægt innlegg í Evrópuumræðuna ...
»
 
  Íslamistar og naívistar.
Karen Jespersen og Ralf Pittelkow.
Þýð.: Brynjar Arnarson
 
Ný ógn steðjar að frelsi Vesturlanda – íslamisminn. Þessi bók er uppgjör við bæði íslamista og naívistana, sem vilja láta undan þeim, eftir dönsku blaðamannshjónin Ralf Pittelkow og Karen Jespersen, ráðherra.

1.990 kr. Panta.

Atli Harðarson 19.11.2007: Stórmerkileg bók og afar þörf. »
  
  Ný framtíðarsýn.
Þorkell Sigurlaugsson.

Í þessari bók fjallar Þorkell um nauðsyn þess að þjóðin móti sér nýja framtíðarsýn við endurreisn efnahagslífsins þar sem nýir stjórnarhættir, bætt viðskiptasiðferði, sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.

Fjallað er ítarlega um stjórnun fyrirtækja, einkum hlutverk stjórna, stjórnarhætti stjórna og æðstu stjórnenda. Þorkell telur brýnt að innleiða ný gildi við stjórnun fyrirtækja og endurvekja gömul gildi sem hundsuð voru í fífldirfsku og hrunadansi síðustu ára. Efnahagsleg umgjörð, eftirlitskerfi ríkisvaldsins og ný framtíðarsýn stjórnvalda, fyrirtækja og einstaklinga skipta höfuðmáli í þeirri uppbyggingu sem framundan er.

Það er boðskapur bókarinnar að ástæða sé til bjartsýni ef rétt sé á málum haldið því Ísland er enn land stórkostlegra tækifæra. Þá þarf að byggja upp alþjóðlegt samstarf og frjáls markaðshagkerfi en forðast einangrunarstefnu, ríkisforsjá og haftastefnu.

Ný framtíðarsýn er mikilvægt framlag til umræðunnar um endurreisn atvinnulífsins og uppgjörs við þá sem komu bankakerfinu, mörgum öflugustu fyrirtækjum landsmanna og þúsunda landsmanna í fjárhagslegt þrot.

208 bls., innbundin.
4.490 kr.
Tilboðsverð 3.790 kr. Panta.
 
  Kommúnisminn.
Richard Pipes.
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson og Margrét Gunnarsdóttir.
 
Í bókinni er lýst fræðilegum grunni kommúnismans, fjallað um fyrstu hugmyndir um eignalaust samfélag og hvernig kommúnisminn varð að fræðikenningu um afnám séreignarréttarins og vopnaða byltingu. Rakin er saga kommúnismans í Rússlandi og velt vöngum yfir því hvers vegna Rússland, þvert á alla spádóma Marx, varð fyrst landa til að verða kommúnískt. Sagt er frá stjórnarháttum Leníns og Stalíns í Sovétríkjunum, samyrkjuvæðingunni og ógninni miklu, hnignun kommúnistastjórnarinnar og loks falli hennar í Evrópu. Fjallað er um sögu kommúnismans á heimsvísu – útbreiðslu hans til Kína og þróunarlanda, viðtökur hans á Vesturlöndum og kalda stríðið. Loks er reynt að grafast fyrir um það hvers vegna kommúnisminn mislukkaðist og gerð grein fyrir þeim mannfórnum sem kommúnisminn kallaði yfir heimsbyggðina á 20. öld. Richard Pipes, prófessor emeritus í sagnfræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, er einn þekktasti sérfræðingur heims í sögu kommúnismans. Hann hefur skrifað fjölmörg fræðirit um byltinguna og kommúnismann í Rússlandi en einnig fræðirit um eignarrétt og frelsi.

180 bls.
1.990 kr. Panta.
     
  Ranghugmynd Richards Dawkins.
Alister McGrath og Joanna Collicut McGrath.

Prófessor í trúarbragðasögu við Oxford-háskóla og trúarbragðasálfræðingur takast á við hugmyndir guðleysingjans Richards Dawkins. Er trú vitleysa? Eiga vísindin og trúarbrögðin í ævarandi baráttu?

1.990 kr. Panta.
  
  Þjóð í hafti.
Jakob F. Ásgeirsson.

Þekkir þú sögu haftaáranna? Þegar öll verslun á Íslandi var hneppt í svo harðar viðjar að ekki mátti flytja bók til landsins án þess að biðja yfirvöld um leyfi? Þegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóð næturlangt í biðröðum í von um að geta keypt sér eitt par af bomsum? Þegar innflutningsleyfi fyrir bílum gengu kaupum og sölum fyrir hærra verð en sjálfur bíllinn kostaði? Þegar menn voru fangelsaðir fyrir að reisa sér bílskúr í óþökk yfirvalda? Þegar ríkið rak prentsmiðju og vélsmiðju og setti á fót ótal einkasölur – viðtækjaeinkasölu, bifreiðaeinkasölu, raftækjaeinkasölu og grænmetiseinkasölu? Þegar pólitísk spilling grasséraði, smygl og svartamarkaður – og voldug hagsmunasamtök risu upp úr öllum áttum til að tryggja hlut sinn í haftakerfinu?

Haftatímabilið er jafnan talið standa frá 1930 til 1960 þegar viðreisn efnahagslífsins hófst í anda frjáls markaðsbúskapar. Í þessari bók segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega læsilegan hátt. Bókin kom fyrst út árið 1988 og hefur lengi verið ófáanleg.

380 bls.
1
.990 kr. (kilja). Panta.

 








Veittur er
10% afsláttur
af bókakaupum hér á vefsíðunni.
Ef keypt er fyrir 10.000 krónur eða meira er afslátturinn 20%. Heimsending er ókeypis. Greiðsluseðill fylgir sendingunni.
Panta.

 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »