|
Fréttir
frá Bókafélaginu Uglu 2008
Höfundur
Bartimćusar-ţríleiksins skrifar um Gretti
Breski metsöluhöfundurinn
Jonathan Stroud hefur nýlega skrifađ bók byggđa á Grettissögu, ađ ţví er
kemur fram á vefsíđu hans. Jonathan segist hafa valiđ ţessa fjórtándu aldar
íslensku sögu ţegar bókaútgefandi bađ hann ađ endursegja frćga hetjusögu.
Hann segir ađ hinn sterki Grettir hafi sífellt veriđ ađ koma sér í vandrćđi
vegna skapofsa síns. Bardaginn viđ drauginn Glám er einn af hápunktum
sögunnar, ađ mati Jonathans. Bókin verđur gefin út haustiđ 2009 hjá
forlaginu Barrington Stoke sem sérhćfir sig í útgáfu bóka fyrir ţá sem eru
lesblindir eđa eiga í erfiđleikum međ lestur.
Jonathan Stroud er ţekktastur
fyrir Bartimćusar-ţríleikinn, en ţćr bćkur hafa veriđ gefnar út í um
fjörutíu löndum og selst í milljónum eintaka. Bókafélagiđ Ugla hefur tryggt
sér útgáfurétt á ţessum bókum og sú fyrsta,
Verndargripurinn frá
Samarkand, kom út í haust. Morgunblađiđ sagđi frá ţví fyrir
nokkrum árum ađ rćtt hefđi veriđ um ţessa bókaröđ sem arftaka Harry Potters.
Blađiđ sagđi ađ sumir líktu bókunum viđ ferđir Gúllívers en ađrir teldu ţćr
ádeilu á Tony Blair, en sögusviđiđ er London nútímans ţar sem töframenn fara
međ völd.
Eftir áramótin kemur út ný
bók eftir Jonathan Stroud í tólf löndum. Hún nefnist Heroes of the Valley og
styđst ađ einhverju leyti viđ norrćna gođafrćđi.
24.12.2008.
mbl.is
„Ćvintýrabók í lagi“
Ţetta er fyrirsögnin á
bókarumsögn í DV í dag. Ţar skrifar Helga Magnúsdóttir um bókina
Bartimćus I –
Verndargripurinn frá Samarkand, sem Bókafélagiđ Ugla gefur
út.
Helga segir: „Ţessi bók er virkilega
skemmtileg og
ekta ćvintýrabók eins og ţćr gerast bestar. Nćsta bók verđur hluti af
tilhlökkuninni fyrir nćstu jól. Alvöru ćvintýri ţar sem allt getur gerst.“
Bókin fćr 3,5 stjörnur af 5 mögulegum.
22.12.2008.
dv.is
Ţriđja prentun
Pollýönnu
Svo mikil eftirspurn
hefur veriđ eftir bókinni um
Pollýönnu, sem Bókafélagiđ Ugla gefur
út, ađ tvćr fyrstu prentanirnar eru uppseldar. Sú ţriđja er ađ koma úr
prentun.
18.12.2008.
„Pollýönnu inn á hvert heimili“
Erla Hlynsdóttir blađamađur
segir á
bloggsíđu sinni ađ bókin um
Pollýönnu sé
„algjör
skyldulesning fyrir unga sem aldna. Sjaldan ef nokkurn tíman hefur bođskapur
Pollýönnu átt jafn vel viđ.“
Hún segist hafa heillast af barnslegri einlćgninni og flett „spennt
frá einni síđunni yfir á ţá nćstu til ađ komast ađ ţví hvern Pollýanna myndi
gleđja nćst. Ég hreinlega krefst ţess ađ ríkisstjórnin sjái til ţess ađ koma
Pollýönnu inn á hvert heimili.“
16.12.2008.
Bókastríđiđ í
algleymingi
Í tilefni af útkomu bókarinnar
Ţjóđ í hafti er ástćđa til ađ rifja ţađ
upp ađ um miđjan desember 1943 tilkynnti Viđskiptaráđ ađ bókaútgefendum vćri
skylt ađ ákveđa verđ á bókum í samráđi viđ verđlagsstjóra. Jafnframt
skilgreyndi ráđiđ fasta álagningu bókaverslana. Verđlagsstjóri sagđi í
yfirlýsingu ađ ástandiđ á bókamarkađinum hefđi veriđ orđiđ ţannig ađ ekki
hefđi lengur veriđ verjandi ađ láta ţađ afskiptalaust.
Hagkaup reyndi ađ brjóta upp bóksölukerfiđ í byrjun desember 1980 međ
ţví ađ bjóđa nýjar bćkur međ 10% afslćtti en varđ ađ hćtta viđ afsláttinn
skömmu síđar.
Bókastríđ hófst svo fyrir fjórtán árum, í desember 1994, ţegar Bónus
fór ađ selja tíu vinsćlustu bćkurnar međ 15% afslćtti og jók síđan
afsláttinn í 30%. Ţá sagđi ţekktur bókaútgefandi ađ bókmenntir ćttu ekki ađ
lúta sömu markađslögmálum og sykur og hveiti.
Nú er veittur afsláttur sem aldrei fyrr og ein verslun auglýsti
nýlega:
„Forseti
á hálfvirđi.“
15.12.2008.
amx.is
Agatha í Spennubókaklúbbi Eymundsson
Tvćr
nýjar bćkur
eftir Agöthu Christie,
Spilin á borđiđ
og
Stefnumót viđ dauđann,
eru á sérstöku inngöngutilbođi í Spennubókaklúbbi Eymundsson. Slóđ á
klúbbinn er
hér.
14.12.2008.
Ţjóđ í hafti komin í kilju
Ţekkir ţú sögu haftaáranna? Ţegar öll verslun á Íslandi var
hneppt í svo harđar viđjar ađ ekki mátti flytja bók til landsins án ţess ađ
biđja yfirvöld um leyfi? Ţegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóđ
nćturlangt í biđröđum í von um ađ geta keypt sér eitt par af bomsum? Ţegar
menn voru fangelsađir fyrir ađ reisa sér bílskúr í óţökk yfirvalda?
Haftatímabiliđ er jafnan taliđ standa frá 1930 til 1960 ţegar
viđreisn efnahagslífsins hófst í anda frjáls markađsbúskapar. Í bókinni
Ţjóđ í hafti
segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega lćsilegan hátt.
Bókin kom fyrst út áriđ 1988 og hefur lengi veriđ ófáanleg. Hún er nú komin
út í kilju, međal annars til ađ minna stjórnvöld á ađ höft leysa ekki
ađsteđjandi vanda í efnahagsmálum.
Umsögn um bókina er á
Andríki og fyrsti kaflinn er birtur á
Amx.is.
13.12.2008.
Bókafélagiđ Ugla
međ mest seldu barnabókina
Á
nýjum lista yfir bóksölu 3.-9. desember hjá Eymundsson og Bókabúđum Máls og
menningar er
Pollýanna
komin í
1. sćti yfir barna- og unglingabćkur og í 4. sćti á metsölulista yfir allar
bćkur.
Bók Óla Björns Kárasonar,
Stođir FL bresta,
er í 2. sćti á lista um handbćkur, frćđibćkur og ćvisögur og í 8. sćti á
heildarlista um mest seldu bćkur í öllum flokkum.
Í samantekt Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblađiđ um
bóksölu 1.-7. desember
er
Gunnar Dal Ljóđasafn í
6. sćti á lista yfir íslensk og ţýdd ljóđ.
10.12.2008.
Vísindamenn
stađfesta lífsspeki Pollýönnu
Vísindamenn viđ Harvard-háskóla í Boston og háskólann í San Diego í
Kaliforníu hafa sýnt fram á ađ jákvćđni og bjartsýni sé smitandi. CNN
fréttastofan segir frá ţessu á
vefsíđu sinni.
Í
grein sem birt er í hinu virta lćknatímariti British Medical Journal kemur
fram ađ sá sem horfir á hinar björtu hliđar tilverunnar auki um 15% líkurnar
á ţví ađ vinur hans geri slíkt hiđ sama, hjá vinum ţess vinar aukast
líkurnar um 10% og í „ţriđja liđ“ aukast ţćr um 7%. Niđurstöđurnar eru
byggđar á hinni viđamiklu Framingham-rannsókn.
Segja má ađ hér sé komin sönnun á lífsspeki
Pollýönnu
og einnig ađ Einar Benediktsson hafi haft nokkuđ til síns máls ţegar hann
sagđi: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.
08.12.2008.
amx.is
Mikiđ fjallađ um
bók Óla Björns
Bók Óla Björns Kárasonar,
Stođir FL bresta,
hefur veriđ mikiđ til umrćđu í fjölmiđlum síđustu daga. Međal annars má
benda á viđtal viđ höfundinn í
Silfri Egils á sunnudaginn og
ritdóm Björns Bjarnasonar á vefsíđu sinni.
08.12.2008.
Nýtt hefti
Ţjóđmála
Áskrifendur
Ţjóđmála fengu vetrarhefti tímaritsins í pósti í dag. Efniđ
er mjög fjölbreytt ađ vanda, en efnahagsţrengingar síđustu mánađa setja mark
sitt á efnisvaliđ (sjá
hér). Lengsta greinin er eftir Hannes
Hólmstein Gissurarson og fjallar um dvöl rúmlega tuttugu vinstri sinnađra
Íslendinga í leyniskólum í Moskvu.
08.12.2008.
Önnur prentun
Pollýönnu komin
Nú getur Bókafélagiđ Ugla
fariđ ađ dreifa
Pollýönnu til verslana á ný, en bókin seldist upp fyrir nokkrum dögum. Ný prentun bókarinnar er komin frá
Prentsmiđjunni Odda.
08.12.2008.
Gríđarlega vel
skrifuđ bók
Hinn mikli Gatsby
eftir F. Scott Fitzgerald er til umfjöllunar í
Lesbók Morgunblađsins í dag, en bókin kom
út í haust hjá Bókafélaginu Uglu í ţýđingu Atla Magnússonar. „Sagt hefur
veriđ ađ bókin sé vinsćlasta nútímaskáldsagan í bandarískum bókmenntum,“
stendur í Lesbókinni. „Bókin um Gatsby, manninn sem reynir ađ endurlífga
fortíđina, er gríđarlega vel skrifuđ í fallegum, fáguđum og angurvćrum
stíl.“
06.12.2008.
Hin fullkomna
bjartsýnissaga
Kolbrún Bergţórsdóttir
skrifar langan dóm um
Pollýönnu í
Lesbók Morgunblađsins í dag. „Auđvitađ vćri
bókin um Pollýönnu ekki orđin klassísk nema vegna ţess ađ lesendur hafa
kolfalliđ fyrir henni,“ segir Kolbrún. „En fyrst og fremst er Pollýanna
einstaklega skemmtileg bók, lipurlega skrifuđ og full af áhugaverđum
persónum ... Pollýanna er hin fullkomna bjartsýnissaga.“
06.12.2008.
Bók um FL Group
komin út
Óli Björn Kárason
blađamađur hefur samiđ bók um hiđ umtalađa félag FL Group, sem nú heitir
Stođir og er komiđ í greiđslustöđvun. Bókin heitir
Stođir FL bresta
og Bókafélagiđ Ugla gefur hana út. Framan á kápu stendur: „Ţeir virtust vera
töframenn sem kunnu áđur óţekkta galdra í alţjóđlegum viđskiptum. Galdurinn
reyndist spilaborg.“
04.12.2008.
Pollýanna komin í
fjórđa sćti og uppseld
Bókin um
Pollýönnu, sem Bókafélagiđ Ugla gaf út
um miđjan nóvember, er komin í fjórđa sćti á ađallista Eymundsson yfir mest
seldu bćkur í síđustu viku, lista ţar sem Arnaldrur Indriđason trónir í
fyrsta sćti. Og Morgunblađiđ sagđi frá ţví á forsíđu í dag ađ
Pollýanna vćri uppseld hjá útgefanda en
ný prentun vćri vćntanleg.
03.12.2008.
Gerđur hrifin af
ljóđum Gunnars
Gerđur Unndórsdóttir á
Egilsstöđum, móđir Sigmars Vilhjálmssonar útvarpsmanns, sagđi frá ţví í
ţćttinum Simmi og Jói á Bylgjunni í morgun ađ hún hefđi veriđ svo spennt
fyrir ljóđasafni Gunnars Dal (sjá
hér)
ađ hún hefđi pantađ bókina í póstkröfu ađ sunnan. Gerđur las tvö ljóđ úr
bókinni, Auđur og fátćkt (bls. 130) og Ofurmenniđ (bls. 470). Upptaka er
hér.
29.11.2008.
Ţjóđ í hafti
Bókin Ţjóđ í hafti
eftir Jakob F. Ásgeirsson verđur endurútgefin í desember. Bókin var
gefin út áriđ 1988 og fjallar um ţrjátíu ára haftatímabil í sögu
ţjóđarinnar. Hún hefur veriđ ófáanleg um árabil. Ţorsteinn Pálsson ritstjóri
vitnađi í efni bókarinnar í forystugrein
Fréttablađsins í dag.
29.11.2008.
Gatsby og
Pollýanna í Kiljunni
Hinn mikli Gatsby
fékk einstaklega góđa dóma í
Kiljunni í kvöld. Egill Helgason sagđi:
„Ein af hinum stóru bókum heimsins ... Fín útgáfa og fín ţýđing.“ Kolbrún
tók undir ţetta og sagđi: „Ţessi bók er náttúrulega ađ fara bara í
jólapakkana.“ Og Páll Baldvin Baldvinsson bćtti um betur: „Glćsilegt verk.“
Ţess má geta ađ Atli Magnússon ţýddi bókina. Kolbrún fjallađi einnig um
Pollýönnu og sagđi: „Pollýanna, ţetta
er yndisleg bók.“
26.11.2008.
Gunnar Dal í
fimmta sćti
Á bóksölulista sem
Morgunblađiđ birtir í dag er
Gunnar Dal Ljóđasafn í fimmta sćti yfir
ljóđabćkur. Bókin hefur vakiđ mikla athygli og ekki síđur viđtaliđ viđ
Gunnar í
Kastljósi.
26.11.2008.
Stefnumót viđ
dauđann komin á metsölulista
Stefnumót viđ dauđann
eftir Agöthu Christie er í 3. sćti á
metsölulista Eymundsson og Bókabúđa Máls og
menningar yfir skáldverk í kilju dagana 12.-18. nóvember og aftur 19.-25.
nóvember. Bókafélagiđ Ugla
gaf bókina út í byrjun nóvember og einnig ađra spennubók eftir sama höfund,
Spilin á borđiđ. Ragnar Jónasson ţýddi báđar bćkurnar.
Umsögn Kolbrúnar Bergţórsdóttur um bćkurnar er
hér.
26.11.2008.
Arftaki Harry
Potter: Hrikalega skemmtileg bók
Guđríđur Haraldsdóttir
ađstođarritstjóri Vikunnar segir á
bloggi sínu í dag ađ hún sé „búin ađ finna
arftaka Harry Potters ... Bókaútgáfan Ugla sendi mér bćkur í gćr (m.a.
Pollýönnu) en ein ţeirra var ţykk og girnileg unglingabók, sú fyrsta í
ţríleik, og fjallar um anda sem ungur töframađur (lćrlingur) galdrar til sín
og lćtur (andann) stela hálsmeni frá töframanni sem hafđi niđurlćgt strákinn
á viđurstyggilegan hátt. Ţrátt fyrir viđfangsefniđ er bókin engin stćling á
Harry Potter, bara hrikalega skemmtileg og heilar 440 bls. sem ćtti ađ
gleđja sanna bókaorma. Vona ađ ég vaxi aldrei upp úr ćvintýrabókum, ţađ er
gćđastimpill á ţćr ţegar foreldrarnir rćna ţeim af börnum sínum. Ţessi bók
heitir Bartimćus I –
Verndargripurinn frá Samarkand sem ćtti ađ vera í höndum
sem flestra.“ Guđríđur fjallar
einnig um bókina í
Vikunni og segir ţar: „Ţessi bók er
hrikalega spennandi og skemmtileg, t.d. eru undirmálsgreinar, ţar sem hinn
fyndni og klári Bartimćus útskýrir hlutina á sinn hátt, algjör snilld. Ţessi
fyrsta bók í ţríleiknum um Bartimćus lofar mjög góđu og án efa eiga
foreldrar eftir ađ stelast í hana ... eins og viđ gerđum öll međ Harry
Potter-bćkurnar.“
26.11.2008.
Pollýanna: Tímabćr
lesning á erfiđum tímum
Pollýanna, ein vinsćlasta barnabók allra
tíma, er komin út hjá Bókafélaginu Uglu. Bókin fjallar um unga stúlku sem er
alltaf glöđ, hvađ sem á dynur. Bjartsýni Pollýönnu og gleđi smitar út frá
sér og hefur undraverđ áhrif á alla sem umgangast hana. Bókin, sem er eftir
bandaríska barnabókahöfundinn Eleanor H. Porter, kom fyrst út hér á landi
áriđ 1945 í afbragđsţýđingu Freysteins Gunnarssonar skólastjóra
Kennaraskólans og hefur veriđ ófáanleg í nćr tvo áratugi. Hún á fullt erindi
viđ íslenska lesendur nú á ţessum erfiđleikatímum, ţegar meiri ţörf er á
bjartsýni og jákvćđni en nokkru sinni fyrr. Ákvörđun um útgáfuna var tekin
fyrir tćpum mánuđi, eftir ađ bankakreppan skall á. Afkomendur Freysteins
tóku mjög vel í hugmyndina og prentsmiđjan Oddi prentađi bókina á mettíma. Í
ritdómi áriđ 1987 sagđi séra Sigurđur Haukur Guđjónsson ađ bókin um
Pollýönnu tjái „lífssannleik sem er lykill ađ hamingjunni er viđ ţráum öll,
ţeirri ađ finna sátt viđ eigiđ líf“. Hann sagđi ađ sagan vćri frábćrlega vel
skrifuđ, hjartnćm og hlý „svo ađ öldungi féllu tár um vanga af gleđi“.
Sigurđur Haukur sagđi ađ ţetta vćri afburđabók „sem ćtti ađ vera í höndum
sem flestra“.
20.11.2008.
Morgunblađiđ,
20.11.2008:
Góđur bođskapur sem á alltaf erindi. »
Leikhúsgestir
fengu bókavinninga
Nokkrir gestir á sýningu
Leikfélags Akureyrar á Músagildrunni um síđustu helgi voru dregnir út
í happdrćtti ţar sem vinningarnir voru bćkurnar Spilin á borđiđ og
Stefnumót viđ dauđann eftir Agöthu Christie, sem Bókafélagiđ Ugla gaf út í
haust. Frétt Leikfélagsins er
hér.
19.11.2008.
Ţćgileg spenna og
prýđisgóđ afţreying
Kolbrún Bergţórsdóttir
skrifar mjög vinsamlegan dóm í Lesbók Morgunblađsins í dag um Spilin á borđiđ og
Stefnumót viđ dauđann eftir Agöthu Christie, sem Bókafélagiđ Ugla gaf út í
haust. Fyrirsögnin er: „Ţćgileg spenna.“ Í lokin segir hún um Agöthu:
„Í bókum sínum skapar hún gamaldags, ţćgilegan heim sem raskar ekki ró
nokkurs manns. Lesendur vita í upphafi nokkurn veginn hvađ bíđur ţeirra:
Morđ, rannsókn og óvćnt endalok. Semsagt prýđisgóđ afţreying.“ Umsögn
Kolbrúnar er
hér í heild á pdf-formi.
15.11.2008.
Bók um
fiskveiđistjórnunarkerfiđ er komin út
Bókafélagiđ Ugla og RSE
hafa gefiđ út bókina
Advances in Rights Based Fishing sem fjallar um
eignarréttarbundna fiskveiđistjórnun. Ţetta eru rutgerđir byggđar á
fyrirlestrum sem fluttir voru á ráđstefnu RSE í ágúst 2006. Ragnar Árnason,
einn af ritstjórum bókarinnar, afhenti Einari K. Guđfinnssyni
sjávarútvegsráđherra, eintak af bókinni (sjá
mynd).
15.11.2008.
Langt viđtal viđ
Gunnar Dal í Kastljósi
Í Kastljósi Sjónvarpsins
í kvöld birtist viđtal Jóhönnu Vilhjálmsdóttur viđ Gunnar Dal rithöfund og
heimspeking í tilefni ađ útgáfu Bókafélagsins Uglu á ljóđasafni hans.
Viđtaliđ var tekiđ upp á Kaffi París, ţar sem Gunnar er tíđur gestur. Rćtt
var um ljóđagerđ hans, lífiđ og tilveruna og einnig um ţá erfiđleika sem
ţjóđin stendur frammi fyrir. Gunnar virtist bjartsýnn á framtíđ Íslendinga.
Fyrst um sinn er hćgt ađ horfa á viđtaliđ
hér. Lesa má nánar um ljóđasafniđ
hér.
11.11.2008.
Ruv.is, 11.11.2008:
Dagskrárkynning ... »
Eiríkur Jónsson,
DV.is,
11.11.2008:
Sendum Gunnar til Bessastađa ... »
Lára Hanna
Einarsdóttir, Blog.is,
11.11.2008:
Myndband af viđtalinu ... »
Páll Höskuldsson,
Blog.is, 11.11.2008:
Nýtt Ísland ... »
H-4, Blog.is,
11.11.2008:
Verum góđ ... »
Hildur
Guđlaugsdóttir, 123.is,
12.11.2008:
Landamćri hins ríka manns ... »
Katrín S.
Baldursdóttir, Blog.is, 12.11.2008:
Landamćri ríka
mannsins ... »
Hallgrímur
Óskarsson, Blog.is, 12.11.2008:
Ţrćlar fjármagnsins
... »
Hrafn Andrés
Harđarson, Blog.is, 13.11.2008:
Mikiđ eigum viđ gott
... »
Tvćr spennusögur
eftir Agöthu Christie
Bókafélagiđ Ugla hefur
gefiđ út tvćr bćkur eftir drottningu sakamálasagnanna, Agöthu Christie.
Spilin á borđiđ
(Cards on the Table) kom út á frummálinu áriđ 1936 en kemur nú út í
íslenskri ţýđingu í fyrsta sinn. Herra Shaitana safnar fólki sem hefur
komist upp međ morđ. Hann býđur Hercule Poirot í heimsókn en áđur en kvöldiđ
er á enda hefur einn „safngripanna“ myrt gestgjafann. Fjórir liggja undir
grun – og Poirot stendur frammi fyrir einni af sínum erfiđustu ráđgátum.
Spilin á borđiđ er 270 bls.
Stefnumót viđ dauđann
(Appointment with Death) hefur áđur komiđ út í íslenskri ţýđingu undir
heitinu „Feigđarför“. Illgjörn bandarísk ekkja finnst látin í hinni fornu
borg Petra í Landinu helga. Margir vildu hana feiga en örlítiđ far eftir
sprautunál er eina vísbendingin um ađ hún hafi ekki dáiđ eđlilegum dauđdaga.
Hercule Poirot tekur ađ sér ađ komast ađ hinu sanna innan sólarhrings.
Stefnumót viđ dauđann er 240 bls. Ragnar Jónasson ţýddi báđar bćkurnar.
05.11.2008.
Ný bók eftir
Patriciu Cornwell
Bókafélagiđ Ugla hefur
gefiđ út bókina
Blóđreiturinn eftir einn vinsćlasta spennusagnahöfund heims,
Patriciu Cornwell. Jólahátíđin hefur sjaldan reynst Kay Scarpetta góđur
tími. Ţá fara ofbeldismenn gjarnan á stjá og ţađ ţýđir útkall hjá
yfirréttarmeinafrćđingnum í Virginíu og greinanda hjá FBI, bandarísku
alríkislögreglunni. Um ţessi jól finnst nakiđ lík af ungri konu, sem enginn
veit hver er, á skuggalegum stađ í Central Park í New York. Líkinu hefur
veriđ stillt upp viđ gosbrunn. Allt bendir til ţess ađ sadískur rađmorđingi
sé aftur kominn á kreik. Aldrei hefur reynt meira á Kay Scarpetta og
samstarfsmenn hennar en í ţessari ćsilegu leit ađ siđblindum brjálćđingi sem
er međ Kay á heilanum. Blóđreiturinn er 360 bls. Atli Magnússon ţýddi
bókina.
05.11.2008.
Ljóđasafn Gunnars
Dal komiđ út
Nú er veriđ ađ dreifa í
bókaverslanir ljóđasafni Gunnars Dal, en ţađ er gefiđ út í tilefni af 85 ára
afmćli ţessa skálds og heimspekings. Safniđ geymir allar fimmtán ljóđabćkur
hans og auk ţess eina nýja sem nefnist
„Ţađ
ert ţú“.
Fyrsta ljóđabók Gunnars kom út áriđ 1949 og er hann međ afkastamestu skáldum
ţjóđarinnar. Í bókinni eru birtar tvćr ritgerđir um ljóđagerđ Gunnars eftir
Jóhannes Helga og Ólaf Hauk Árnason. Ţar kemst Jóhannes Helgi m.a. svo ađ
orđi ađ áleitin ljóđ Gunnars beri vott um agađa listgáfu, blćbrigđaríkt
tilfinningalíf og virđingu fyrir lífinu. Bókin er 576 bls. Lesa má nánar um
ljóđasafniđ hér.
19.10.2008.
Styttist í
jólabćkurnar
Allar bćkur Bókafélagsins
Uglu eru nú komnar í prentun. Útgáfubćkurnar í ár eru fimmtán og verđa ţćr
kynntar á nćstu vikum. Framhald verđur á útgáfu ţýddra skáldsagna og einnig
eru á jólalistanum bćkur sem fjalla um ţjóđfélagsmál og ljóđasafn. Sjá
hér.
16.10.2008.
Allt ađ 20%
afsláttur ef keypt er á vefsíđunni
Nú hefur veriđ ákveđiđ ađ
bjóđa bćkur til sölu hér á vefsíđunni á einstaklega góđum kjörum. Veittur er
10% afsláttur og heimsending er ókeypis. Ef keypt er fyrir 10.000
krónur eđa meira er afslátturinn 20% (sjá nánar
hér). Fljótlega verđa kynnt mánađartilbođ á
völdum bókum.
04.10.2008.
Biblía sem
nútímafólk kann ađ meta
Biblían á 100 mínútum,
sem Bókafélagiđ Ugla gaf út fyrir tveimur árum, hefur svo sannarlega slegiđ
í gegn. Bókin seldist upp en hefur nú veriđ endurprentuđ. Biblían er nú
einnig fáanleg sem hljóđbók, en lesari er Sigurđur Skúlason leikari. Í
formála bókarinnar segist Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands fagna útgáfunni
og telur hana skemmtilegt og handhćgt yfirlit sem
„gefur
glögga innsýn í meginstef Biblíunnar og handhćgan leiđarţráđ til ađ rata
gegnum hana“.
Hćgt er ađ panta bćkurnar
hér.
04.10.2008.
Fyrstu ţrjár
barnabćkurnar frá Uglu
Nýlega gaf Bókafélagiđ Ugla út sínar
fyrstu barnabćkur. Ţetta eru Ella Bella ballerína eftir
James Mayhew, Gleym mér ei eftir
Michael Broad og Ljósálfavinkonur
eftir
Penny Dann. Allir eru ţessir rithöfundar
breskir og myndskreyta bćkur sínar sjálfir. Hver bók kostar ađeins 2.490
krónur (2.240 krónur međ 10% afslćtti).
28.09.2008.
Sautján
bćkur á síđasta ári
Bókafélagiđ Ugla gaf út sautján bćkur á
árinu 2007, auk fjögurra hefta af tímaritinu Ţjóđmálum. Skrá um
bćkurnar, međ nánari upplýsingum, má sjá
hér.
27.09.2008.
|