| |
Gunnar Dal
Hann gaf út sína fyrstu
ljóðabók, Veru, árið 1949. Þá sagði Kristmann Guðmundsson í ritdómi í
Morgunblaðinu: „Skáld er hann - og getur orðið mikið skáld.“ Síðan hafa
komið út margar bækur eftir Gunnar, ljóð, skáldsögur, heimspekirit o.fl.
Einnig er hann þekktur fyrir þýðingu sýna á Spámanninum eftir Kahlil Gibran,
en bókin kom út fyrir hálfri öld og hefur selst í tugum þúsunda eintaka.
Heildarsafn ljóða Gunnars Dal er kærkomið fyrir ljóðaunnendur og ekki síður
fyrir þá sem kunna að meta hina djúpu speki sem býr í því sem frá honum
kemur.
 |
|
2008:
Gunnar Dal. Ljóðasafn.
Gunnar Dal.
Ljóðasafn Gunnars Dal er
gefið út í tilefni af 85 ára afmæli þessa skálds og heimspekings. Safnið
geymir allar fimmtán ljóðabækur hans og auk þess eina nýja sem nefnist
„Það
ert þú“.
Fyrsta ljóðabók Gunnars kom út árið 1949 og er hann með afkastamestu skáldum
þjóðarinnar.Í bókinni eru birtar tvær ritgerðir um ljóðagerð Gunnars eftir
Jóhannes Helga og Ólaf Hauk Árnason. Þar kemst Jóhannes Helgi m.a. svo að
orði að áleitin ljóð Gunnars beri vott um agaða listgáfu, blæbrigðaríkt
tilfinningalíf og virðingu fyrir lífinu.
576 bls.
3.990 kr.
Panta. |
| |
|
|
 |
|
2007:
Einn heimur – fimm heimsmyndir.
Gunnar Dal.
Hvað er menning? Hvað er
veruleiki? Gunnar Dal fjallar um grundvöll og afleiðingu mannlegrar tilveru.
2.990 kr.
Panta.
|
| |
|
|
Ruv.is, 11.11.2008:
Dagskrárkynning ... »
Eiríkur Jónsson,
DV.is,
11.11.2008:
Sendum Gunnar til Bessastaða ... »
Lára Hanna
Einarsdóttir, Blog.is,
11.11.2008:
Myndband af viðtalinu ... »
Páll Höskuldsson,
Blog.is, 11.11.2008:
Nýtt Ísland ... »
H-4, Blog.is,
11.11.2008:
Verum góð ... »
Hildur
Guðlaugsdóttir, 123.is,
12.11.2008:
Landamæri hins ríka manns ... »
Katrín S.
Baldursdóttir, Blog.is, 12.11.2008:
Landamæri ríka
mannsins ... »
Hallgrímur
Óskarsson, Blog.is, 12.11.2008:
Þrælar fjármagnsins
... »
Hrafn Andrés
Harðarson, Blog.is, 13.11.2008:
Mikið eigum við gott
... »
|
|

Gunnar Dal
skáld og
heimspekingur.
Langferð
Þú leggur í langar ferðir
litla barnið mitt.
Hinum megin við hornið
er húsið þitt.
Heimurinn frjáls og fagur
þér fagnandi mætir nú.
Í vatninu vaðið þið saman
vorið og þú.
Barnið mitt í bæinn
berðu ljós og yl.
Við skulum hjálpa vorinu
að verða til.
Gunnar Dal. Ljóðasafn.
Bls. 366.
Ísland
Vökunætur
í vorblárri firrð
ég vildi að þér
hamingjan gæfi.
Að Ísland
þú sæir og öræfi þess.
Allt væri það við hæfi.
Finn þessa
íslensku fegurð og hún
fylgir þér alla ævi.
Gunnar Dal. Ljóðasafn.
Bls. 310.
|
|