Bćkur
Höfundar
Vefverslun
Um Bókafélagiđ Uglu
 


Jakob F. Ásgeirsson

Jakob F. Ásgeirsson (f. 1961) er M.A. í heimspeki, stjórnmálafrćđi og hagfrćđi (P.P.E.) frá Pembroke College, Oxford, og M.Litt. í stjórnmálafrćđi frá Oxford-háskóla. Jakob hefur unniđ viđ ritstörf, blađamennsku og bókaútgáfu. Aung San Suu Kyi er hans tíunda bók. Áđur hefur hann sent frá sér ţrjár ćvisögur – um Alfređ Elíasson flugmann og forstjóra Loftleiđa, Pétur Benediktsson sendiherra og bankastjóra og Valtý Stefánsson ritstjóra Morgunblađsins; ţrjú sagnfrćđiverk – um haftaárin á Íslandi, ljósmyndabók um sögu 20. aldarinnar á Íslandi og yfirlit um framkvćmdir Stjórnarráđs Íslands á árunum 1991–2004; safn greina um ţjóđmál frá árunum 1998–2004; svipmyndir af listamönnum og rithöfundum; og samtalsbók viđ Kristján Albertsson rithöfund. Jakob er ritstjóri og útgefandi tímaritsins Ţjóđmála sem hóf göngu sína haustiđ 2005.
 
  Ţjóđ í hafti.
Jakob F. Ásgeirsson.

Ţekkir ţú sögu haftaáranna? Ţegar öll verslun á Íslandi var hneppt í svo harđar viđjar ađ ekki mátti flytja bók til landsins án ţess ađ biđja yfirvöld um leyfi? Ţegar ávextir sáust ekki árum saman og fólk stóđ nćturlangt í biđröđum í von um ađ geta keypt sér eitt par af bomsum? Ţegar innflutningsleyfi fyrir bílum gengu kaupum og sölum fyrir hćrra verđ en sjálfur bíllinn kostađi? Ţegar menn voru fangelsađir fyrir ađ reisa sér bílskúr í óţökk yfirvalda? Ţegar ríkiđ rak prentsmiđju og vélsmiđju og setti á fót ótal einkasölur – viđtćkjaeinkasölu, bifreiđaeinkasölu, raftćkjaeinkasölu og grćnmetiseinkasölu? Ţegar pólitísk spilling grassérađi, smygl og svartamarkađur – og voldug hagsmunasamtök risu upp úr öllum áttum til ađ tryggja hlut sinn í haftakerfinu?

Haftatímabiliđ er jafnan taliđ standa frá 1930 til 1960 ţegar viđreisn efnahagslífsins hófst í anda frjáls markađsbúskapar. Í ţessari bók segir Jakob F. Ásgeirsson sögu haftaáranna á einstaklega lćsilegan hátt. Bókin kom fyrst út áriđ 1988 og hefur lengi veriđ ófáanleg.

380 bls.
1
.990 kr. (kilja). Panta.

Bćkur eftir Jakob F. Ásgeirsson

1984: Alfređs saga og Loftleiđa. (2. útg. 1985.)
1986: Kristján Albertsson. Margs er ađ minnast.  (2. útg. 2006.) »
1988: Ţjóđ í hafti.  (2. útg. 2008.) »
1998: Pétur Ben.
2000: 20. öldin. Brot úr sögu ţjóđar.
2003: Valtýr Stefánsson. Ritstjóri Morgunblađsins.
2004: Til móts viđ nýja öld. Stjórnarráđ Íslands 1964-2004, 3. bindi.
2005: Frá mínum bćjardyrum séđ. »
2006: Í húsi listamanns. » 

Bćkur sem Jakob F. Ásgeirsson hefur ţýtt

2005: Kommúnisminn (ásamt Margréti Gunnarsdóttur). »
2006: Biblían á 100 mínútum. »

2007: Látum slag standa (ásamt Margréti Gunnarsdóttur). »
 

 




Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur.

 

 

 

 

   
Bókafélagiđ Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til ađ panta bćkur). »