Bækur
Höfundar
Þýðendur
Um Bókafélagið Uglu
 


Jonathan Stroud

Bókafélagið Ugla hefur tryggt sér útgáfurétt á Bartimaeusar-þríleiknum eftir breska rithöfundinn Jonathan Stroud. Fyrsta bókin er Verndargripurinn frá Samarkand. Bækurnar hafa nú verið gefnar út í 38 löndum.

„Sumir í bókaútgáfuheiminum telja bókaröðina lofa svo góðu að þeir hafa kallað hana „næsta Harry Potter“. Nú þegar er í undirbúningi kvikmyndun fyrstu bókarinnar,“ segir Morgunblaðið. Sumir líkja bókinni við ferðir Gúllívers, aðrir telja þetta ádeilu á Tony Blair. Blaðið segir að bækurnar séu ekki síður fyrir fullorðna en börn.

Í janúar 2009 kemur út ný bók eftir Jonathan Stroud í tólf löndum. Hún nefnist Heroes of the Valley og styðst að einhverju leyti við norræna goðafræði.

Opinber vefsíða um Bartimæusar-þríleikinn. »
Opinber vefsíða Jonathan Stroud. »
 
 

2008:
Bartimæus I – Verndargripurinn frá Samarkand.
Jonathan Stroud.
Þýð.: Brynjar Arnarson.

Ungur töframannslærlingur, Nathaniel, verður á vegi töframeistarans Simons Lovelace sem ber höfuð og herðar yfir aðra töframenn sökum kunnáttu sinnar og grimmdar. Þegar Lovelace niðurlægir Nathanial opinberlega ákveður Nathaniel að hefna sín. Hann stefnir til sín á laun skapbráðum 5.000 ára gömlum djinní, Bartimæus. Hann fær Bartimæus það verkefni að ræna frá Lovelace hinum magnþrungna verndargrip frá Samarkand. Áður en langt um líður sogast Nathaniel og Bartimæus inn í ógnvænlega hringiðu leynimakks og átaka. Sögusviðið er London nútímans þar sem töframenn fara með völd. Mögnuð metsölubók sem farið hefur sigurför um heiminn og gagntekið hugi lesenda á öllum aldri. Tvær milljónir eintaka seldar.

440 bls.
3.990 kr. Panta.

Guðríður Haraldsdóttir, Dv.is, 20.11.2008:
... búin að finna arftaka Harry Potters ... hrikalega skemmtileg... ætti að vera í höndum sem flestra. »

 

     

 








Jonathan Stroud
er 37 ára, búsettur rétt utan við London
.

 

 

 

 

   
Bókafélagið Ugla ehf., Hraunteigi 7, 105 Reykjavík. Sími 698 9140.
Hafa samband í tölvupósti (m.a. til að panta bækur). »