| |
Þorkell
Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson,
höfundur Nýrrar framtíðarsýnar, er framkvæmdastjóri fjármála- og
þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík (HR). Hann hefur gegnt lykilhlutverki við
þróun og uppbyggingu HR frá því hann hóf þar störf árið 2004. Þorkell lauk
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1977. Hann starfaði hjá
Eimskipafélagi Íslands að loknu námi, lengst af sem framkvæmdastjóri og
síðan framkvæmdastjóri hjá Burðarási, sem var hlutabréfasjóður í eigu
Eimskips. Í framkvæmdastjóratíð Þorkels urðu umtalsverðar breytingar á
Eimskipafélaginu. Það var lengi eitt öflugasta fyrirtæki landsmanna og í
fremstu röð á ýmsum sviðum.
Þorkell hefur setið í
stjórnum um tuttugu fyrirtækja, meðal annars Marels, Össurar, TM Software
(áður TölvuMynda) og Kauphallar Íslands svo tekin séu dæmi um nokkur stærri
fyrirtæki, auk þess að sinna ýmsum félagsstörfum. Þorkell hefur ritað fjölda
greina í blöð og tímarit, einkum um stjórnunarmál og er höfundur nokkurra
bóka.
Þorkell er kvæntur
Kristínu H. Vignisdóttur og eiga þau þrjú börn.
Bækur eftir Þorkel Sigurlaugsson:
Framtíðarsýn, 1989.
Frá handafli til hugvits, 1993.
Stefnumarkandi áætlanagerð, 1994.
Stjórnlist, 1995.
Ný stjórnlist, 1996.
Stjórnun breytinga, 1996.
Ný framtíðarsýn, 2009.

 |
|
Ný
framtíðarsýn.
Þorkell
Sigurlaugsson.
Í þessari bók fjallar Þorkell
um nauðsyn þess að þjóðin móti sér nýja framtíðarsýn við endurreisn
efnahagslífsins þar sem nýir stjórnarhættir, bætt viðskiptasiðferði,
sjálfbærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Fjallað er ítarlega um
stjórnun fyrirtækja, einkum hlutverk stjórna, stjórnarhætti stjórna og æðstu
stjórnenda. Þorkell telur brýnt að innleiða ný gildi við stjórnun fyrirtækja
og endurvekja gömul gildi sem hundsuð voru í fífldirfsku og hrunadansi
síðustu ára. Efnahagsleg umgjörð, eftirlitskerfi ríkisvaldsins og ný
framtíðarsýn stjórnvalda, fyrirtækja og einstaklinga skipta höfuðmáli í
þeirri uppbyggingu sem framundan er.
Það er boðskapur bókarinnar
að ástæða sé til bjartsýni ef rétt sé á málum haldið því Ísland er enn land
stórkostlegra tækifæra. Þá þarf að byggja upp alþjóðlegt samstarf og frjáls
markaðshagkerfi en forðast einangrunarstefnu, ríkisforsjá og haftastefnu.
Ný framtíðarsýn er
mikilvægt framlag til umræðunnar um endurreisn atvinnulífsins og uppgjörs
við þá sem komu bankakerfinu, mörgum öflugustu fyrirtækjum landsmanna og
þúsunda landsmanna í fjárhagslegt þrot.
208
bls., innbundin.
4.490 kr.
Tilboðsverð 3.790 kr. Panta. |
|
|

Þorkell
Sigurlaugsson
|
|